kjararáð o.fl.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp um kjararáð þar sem gert er ráð fyrir því að hæstu laun stjórnenda hjá ríkinu verði að hámarki laun forsætisráðherra. Hv. formaður efnahags- og skattanefndar rakti ágætlega að hugsunin væri sú að ábyrgð forsætisráðherra væri hvað mest í stjórnkerfinu og þar af leiðandi væri eðlilegt að hann væri með hæstu launin. Síðan rakti hann í andsvari að það væri ekki algilt að sá með mestu ábyrgðina ætti að vera með hæstu launin vegna þess að sérfræðingar þyrftu að keppa við erlenda aðila. Það er því svona eins og annað í frumvörpum valdhafanna að þar rekst hvað á annars horn og rökin halda ekki á milli ræðu og andsvara.
Þessi hugmynd um hæstu laun hjá hinu opinbera er ekki ný af nálinni. Hugmyndin var viðruð hér á áttunda áratugnum og þar gekk ónefndur maður með þessa hugmynd í maganum svipað og hæstv. forsætisráðherra gerir núna. Þingmenn þá sögðu að hann væri með „fix-ídeu“, að þetta væri ruglhugmynd, og ég ætla að taka undir að þessi hugmynd hefur ekki batnað með árunum. Þegar verið er að breyta skipulagi, hvort sem það er launaskipulag hjá hinu opinbera, hagskipulag eða hvaða skipulag sem mun hafa langtímaáhrif á ýmsa geira þjóðlífsins, þá er ágætt að líta til annarra landa og skoða hvort hlutirnir hafi reynst vel þar. Hvort þeir hafi yfirleitt verið reyndir einhvers staðar annars staðar og hvernig sé staðið að málum.
Þetta hefur verið reynt í einu landi, Afríkuríki sem ég man ekki alveg hvað heitir í svipinn en það kemur kannski síðar í ræðu minni. Það gekk í eitt, tvö ár en þá var þessi hugmynd lögð af vegna þess að þeir niðri í Afríku sáu að þetta var tómt rugl.
Við höfum fjallað um þetta mál í efnahags- og skattanefnd. Því miður var málinu mjög óvænt kippt út á fundi, sem ég gat því miður ekki verið á, án þess að nægilega vel hefði verið fjallað um það. Okkur sjálfstæðismönnum gafst ekki kostur á að koma fram með okkar sjónarmið í nefndaráliti þannig að því miður endurspeglar nefndarálitið á engan hátt okkar álit.
Frumvarpið hefst á því að talað er um að vegna efnahagslegra erfiðleika á Íslandi þurfi að leita allra leiða til sparnaðar. Áætlaður sparnaður af þessu frumvarpi, ef það fer í gegn, eru 12 milljónir í A-hluta ríkissjóðs og 38 milljónir í öðrum hlutum ríkisins, samtals um 50 milljónir. (Gripið fram í.) Nei, þetta er um helmingurinn af Bankasýslunni. Mér er ekki annt um þá peninga sem fara í Bankasýsluna miðað við þá peninga sem við höfum samþykkt að greiða í lögfræðikostnað fyrir Breta út af Icesave, sem eru 2.000 milljónir. Við erum tilbúin til að greiða 2.000 milljónir fyrir lögfræðikostnað hjá öðru ríki en með þessu frumvarpi viljum við ráðast beint gegn örfáum einstaklingum hér á Íslandi. Við viljum ráðast gegn forstjórum opinberra hlutafélaga, Seðlabanka og stofnana eins og Landspítalans – háskólasjúkrahúss, eins og hér var rakið áðan, til þess að kroppa 50 milljónir. Það getur vel verið að við kertaljós í Stjórnarráðinu hafi mönnum dottið í hug að þetta væri bráðgóð hugmynd og það sýndi mikið og gott fordæmi að lækka laun ríkisforstjóranna til þess að auðveldara yrði að lækka laun ríkisstarfsmanna.
Hv. þm. Helgi Hjörvar rakti áðan að þetta væri táknrænt, að oft þyrfti að sýna fórnir og byrja á sjálfum sér. Það er kannski með einhverjum rökum hægt að fá það út að hæstv. forsætisráðherra byrji á sjálfri sér með því að lækka laun hjá ríkisforstjórum. Ég sé þó ómögulega hvernig það getur verið einhvers konar fyrirmynd þess að skorið verði niður hjá almennum ríkisstarfsmönnum, væntanlega síðar í haust. Það er eins og annað að röksemdafærslan rennur alltaf út í sandinn ef maður fer aðeins að hugsa um hana.
Ég rakti nokkuð vel í ræðu við 2. umr. eða 1. umr. — þessar umræður um öll þessi smámál renna nú orðið saman — að þetta breytir launastrúktúr hjá hinu opinbera. Ljóst er að smám saman mun það markmið nást að hæstv. forsætisráðherra verði launahæstur með 935 þús. kr. á mánuði og allir hinir verði þar undir. Það mun leiða yfir á einkamarkaðinn hugsanlega, eða sem líklegra er að einkamarkaðurinn muni hirða starfsmenn sem flýja vegna fáránlegra launareglna. Þetta er ekki hvati til þess að byggja upp sérfræðiþekkingu hjá hinu opinbera, sem getur komið hinu opinbera vel og stuðlar að bættari rekstri. Þetta stuðlar frekar að því að við búum til rekstur hjá hinu opinbera sem minnir meira á amatöra en sérfræðinga sem geta lagt gott til og komið með góðar hugmyndir í rekstur ríkisins. Þetta leiðir kannski til þess sama og við sáum í Icesave-málinu þar sem Þróttur í Neskaupstað var sendur gegn Mílanó. Hugsanlega verður það þannig að (GÞÞ: Með hverjum hélst þú?) — Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson spyr hvaða liði ég hafi haldið með og ég tek þessu sem hálfgerðri móðgun, auðvitað Þrótti Neskaupstað.
Punkturinn sem ég er að reyna að setja fram á léttari nótum til þess að stytta hv. þingmönnum stundir er að þetta er vanhugsað, þetta getur breytt launastrúktúrnum. Þetta leiðir til spekileka þar sem sérfræðingar hjá hinu opinbera fara yfir á einkamarkaðinn og ekki verður hægt að fá færustu sérfræðinga til þess að stýra t.d. Landspítalanum – háskólasjúkrahúsi, Seðlabankanum og öðrum stofnunum hjá hinu opinbera.
Það er sagt að þetta sé af efnahagsástæðum, eins og ég rakti hérna áðan. Ég setti þetta líka í samhengi við hvað sérfræðingar eða samninganefnd fjármálaráðuneytisins taldi ásættanlegan lögfræðikostnað sem greiða ætti breska ríkinu fyrir hálfs árs vinnu. Tvo milljarða. Þetta sýnir raunverulega fáránleika málsins. Hér stöndum við í ræðustól og sitjum í sölum Alþingis og fjöllum um mál sem er ekki til neins annars fallið en að slá ryki í augu fólks og er ekkert annað en popúlismi. Þetta er einfaldur popúlismi sem skilar ekki neinu, nema ef þessi lög fá að hanga inni í einhvern tíma getur það skilað sér í breyttum launastrúktúr hjá hinu opinbera því að ekki verður hægt að fá hæfustu einstaklingana o.s.frv.
Ég get sem stjórnarandstöðuþingmaður ekki gert neitt annað en bent á þessar augljósu staðreyndir. Það er leiðinlegt að ég skuli ekki geta bent stjórnarliðunum, valdhöfunum, á það vegna þess að þeir eru ekki margir hér í salnum. Þeir eru raunar tveir, hæstv. umhverfisráðherra — ég met það að hún skuli sitja hér undir þessu tali — og hv. þm. Valgerður Bjarnadóttir. Ég kann vel að meta það.
Mér skilst að í dag séu um níu af átján málum tæknilegs eðlis, snúist um að breyta setningum, mál sem skipta engu máli um erfðabreyttar lífverur og urðun úrgangs og alls konar smámál, meðferð hlutafélaga yfir landamæri og annað slíkt. Ekkert mál á listanum sem við sjáum hérna í dag viðkemur því sem þessi ríkisstjórn sem nú situr við völd lofaði kjósendum fyrir kosningar. Það átti að halda sumarþing og einhenda sér í að bjarga heimilunum og fyrirtækjunum. Ekkert mál sem hefur verið til umfjöllunar undanfarna daga og vikur, með kannski einni eða tveimur undantekningum, kemur þessu yfirleitt við. Þetta er miklu fremur eins og einhvers konar afgreiðsluþing. Í dag afgreiðum við níu mál sem varða Evrópska efnahagssvæðið, níu af átján. Síðan læðist inn eitt og eitt mál til þess að hægt sé að slá um sig í fjölmiðlum og segja að það sé verið að ná tökum á einhverri óskilgreindri óráðsíu í launamálum. Ég man að hv. þm. Róbert Marshall talaði í 1. eða 2. umr. um sjálftökulið, að hér væri verið að ná tökum á sjálftökuliði. Hann er þá væntanlega að vísa til konunnar sem hér var til umræðu áðan, sem náð var í til Noregs. Hún er sérfræðingur í að reka sjúkrahús og það er gríðarlega mikill fengur að henni hér. Þetta er allt einhvern veginn hálffurðulegt.
Maður er farinn að spyrja sig: Til hvers er verið að halda þessu sumarþingi gangandi? Þetta virðist bara vera hálfgerður leikaraskapur. Ekki það að ég sé of góður til þess að vera á þingi í sumar. Ég tel brýnna að afgreiða mál sem snerta þau vandamál sem við glímum við núna, þ.e. þessa fjármálakreppu og efnahagshrun sem við höfum orðið fyrir. Mér finnst súrt í broti að við eyðum tímanum í erfðabreyttar lífverur. Ég held að þær ógni okkur Íslendingum ekki það mikið að við getum ekki beðið fram í september eða október með að afgreiða það mál. Kannski er einhver ógn af erfðabreyttum lífverum sem ekki er búið að segja Alþingi frá. Mörgum málum og miklum upplýsingum virðist vera haldið leyndum fyrir okkur í minni hlutanum að það gæti vel verið að ógn af erfðabreyttum lífverum standi fyrir dyrum. Það væri alveg hugsanlegt en þá væri kannski rétt að segja okkur það.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili en vil að síðustu benda mönnum á að það getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér ef þetta verður fest í lög, að hér sé forsætisráðherra sem sagður er bera mesta ábyrgð. Hann ber þá mesta ábyrgð á því úrræðaleysi og seinagangi sem virðist vera á að eiga við þessa efnahagskrísu sem við búum við.
Að lokum vil ég bara segja að menn væru meiri fyrir það að kippa til baka þessu bulli.