137. löggjafarþing — 46. fundur,  23. júlí 2009.

kjararáð o.fl.

114. mál
[20:20]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er vel þekkt í almennri umræðu um lýðræðið — það eru ekkert ofsalega margir áratugir síðan menn töluðu í fullri alvöru um hvað væri skynsamlegasta þjóðskipulagið. Winston Churchill nefndi einhvern tímann að lýðræðið væri meingallað og í rauninni gallaðasta fyrirkomulag sem menn hefðu notað til þess að stjórna ef undan væru skilin öll hin. Þá nefndu menn sérstaklega að við sem störfum að stjórnmálum gerum í flestum tilfellum ekki neitt annað, það erum við sem eigum að vera sérfræðingar á þessu sviði. Á meðan maður er í annarri stöðu, er t.d. almennur kjósandi, hefur maður ekki tíma eða orku til að standa í slíku og verður því að treysta þessum aðilum til þess að draga upp myndina rétta eins og hún er.

Nefnt hefur verið að það sé galli á slíku fyrirkomulagi að þeir aðilar, margir hverjir, reyni að draga athyglina frá aðalatriðum en draga út þætti sem eru litlir en hljóma vel til þess að afla sjálfum sér vinsælda. Enginn hefur samúð með forstöðumönnum ríkisstofnana, nema kannski forstöðumennirnir sjálfir og nánasta fjölskylda alla jafna. Það að taka þann þátt út og segja: Þessir aðilar eru með hæstu launin og við skulum bara lækka þau, það hljómar örugglega alveg ágætlega. Ég held að fæstir séu meðvitaðir um að þeir eru ekki launahæstu mennirnir innan ríkisgeirans. Ég fullyrði að enginn í þingsalnum vissi að 160 manns væru með hærri laun en forstjóri Ríkisspítalanna, ég efast um það. Ég held því að þetta hljómi allt saman bara alveg ágætlega svo að maður tali um hlutina eins og þeir eru. Það sem ég vara hins vegar við er að það er ekki nóg.