kjararáð o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hjörvar fyrir hans andsvar og ég er mjög ánægður að heyra að hann ætli að taka málið inn í nefnd. Ég hvet hann til þess og veit, af því að hann hefur sagt það hér, að hann mun fara vel yfir það mál.
Nokkur umræða hefur verið um einstaka forstjóra, og ég held að hægt sé að segja eins og er, sérstaklega opinberra hlutafélaga. Ég held að menn hafi ekki alveg hugsað þá hugsun til enda. Í það minnsta er ég ekki viss um að menn hafi séð fyrir sér hvernig opinberu hlutafélögin mundu þróast. Það var örugglega ekki lagt í þá vegferð eins og raunin hefur verið — eða það er í það minnsta mín skoðun að það megi skoða það mjög vel.
Kjör eru þó meira en laun og menn hafa vísað á ýmis önnur hlunnindi, bílakjör og aðra slíka hluti. Ég hef alltaf litið svo á og ég veit að það var markmiðið með kjararáði að hafa einhverja samfellu. Það á náttúrlega alls staðar við en þó sérstaklega hjá hinu opinbera. Menn eiga að hafa prinsipp sem ganga í gegnum allt kerfið. Þá verða menn að líta til fleiri þátta en nokkurra tuga forstöðumanna. Menn þurfa að líta á þá aðila sem þarna vinna og í mínum huga skiptir engu máli hvað ríkisfyrirtæki heitir. Það skiptir hins vegar miklu máli að það sé réttlæti og samfella í þessu. Ég held að allir séu sammála um það.
Þetta einstaka frumvarp nálgast hins vegar málin ekki með þeim hætti, alls ekki. Þess vegna er ég mjög ánægður að heyra að hv. þm. Helgi Hjörvar ætli að taka þetta inn og ég treysti því að það verði farið almennilega yfir þetta (Forseti hringir.) þannig að út komi mál sem allir geti verið sáttir með.