störf þingsins.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Eygló Harðardóttur fyrir þessa fyrirspurn. Ég kannast að vísu ekki við að samskiptaleiðir milli Íslands annars vegar og Hollands og Bretlands hins vegar séu lokaðar og sérstakar ráðstafanir þurfi til að opna þær. Íslensk stjórnvöld hafa verið í samskiptum við nágrannaþjóðir okkar m.a. vegna þess máls sem býr að baki fyrirspurn hv. þingmanns, bæði við Norðurlandaþjóðirnar og eins við Breta og Hollendinga.
Málið er hins vegar í þinglegri meðferð á Alþingi og þegar spurt er að því hvort forustumenn ríkisstjórnarinnar hafi óskað eftir samningafundum við Breta og Hollendinga er það að sjálfsögðu ekki eðlileg tímasetning fyrir slíkt á þessu stigi málsins. Málið er í þinglegri meðferð og Alþingi verður að taka ákvörðun um hvernig það hyggst afgreiða þetta mál. Hins vegar er það alveg hárrétt ábending að ef Alþingi kýs að afgreiða það með einhvers konar fyrirvörum eða skilmálum eins og talsvert hefur verið til umræðu er auðvitað mjög mikilvægt að íslensk stjórnvöld ræði það við Breta og Hollendinga. Það er óhjákvæmilegt og ég veit til þess að það er vinna í gangi í utanríkisráðuneytinu til að undirbúa slíkt ef til þess kemur. Þá þarf hugsanlega að gera það með tiltölulega skömmum fyrirvara þannig að það er mikilvægt að menn vandi allan slíkan undirbúning ef til þess kemur. En það er auðvitað ekki eðlilegt á þessu stigi málsins að fara að óska eftir samningaviðræðum við Breta og Hollendinga af hálfu framkvæmdarvaldsins sem hefur lagt mál fyrir Alþingi og er hér til meðferðar. Fyrst verður Alþingi að móta sér einhverja afstöðu til þess hvað það hyggst gera og þá tekur framkvæmdarvaldið við (Forseti hringir.) og vinnur úr þeirri stöðu sem Alþingi ákveður að setja málið í.