störf þingsins.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Pétur Blöndal spurði áðan hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson út í Icesave-ábyrgðirnar og mig langaði af því tilefni til að rifja upp skjal sem var lagt á borð þingmanna á 136. löggjafarþingi, þskj. 503 í máli 227. Því var dreift 4. febrúar. Það er svar hv. þm. Björgvins G. Sigurðssonar við skriflegri fyrirspurn minni um þetta mál, um ábyrgðir okkar í sambandi við Icesave, og í því skriflega svari er eiginlega svar viðskiptaráðuneytisins til breska fjármálaráðuneytisins þar sem spurningum Bretanna frá 7. ágúst er svarað og einnig komið inn á umræður sem voru 31. júlí. Þar kemur mjög skýrt fram hjá íslenska viðskiptaráðuneytinu að álit þess sé að íslenska ríkisstjórnin muni gera allt sem svokölluð „ábyrg ríkisstjórn“, eins og stendur í bréfinu, muni gera. Ef sú staða kemur upp að tryggingarsjóðurinn eigi ekki fyrir lágmarksinnstæðum, lágmarkstryggingum, muni þessi ábyrga ríkisstjórn Íslands gera allt sem hún getur til að tryggja að fé fáist þannig að sjóðurinn geti mætt þessum lágmarkstryggingum.
Það er líka sagt að ríkisstjórnin viti allt um ábyrgð sína í málinu, svokallað „obligations“, allt um skyldur sínar. Það er ítrekað aftur í bréfi 5. október að ef svo illa fari að Landsbankinn hrynji standi íslenska ríkisstjórnin við þetta. (Utanrrh.: Nei.) Það er algjörlega tryggt að Bretar eru dauðstressaðir á þessum tíma. Þeir krefja íslenska viðskiptaráðuneytið um svör og íslenska viðskiptaráðuneytið svarar að íslenska ríkisstjórnin muni aðstoða við að borga þessar (Forseti hringir.) lágmarkstryggingar þannig að það er ekkert skrýtið að hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson sem þá var hæstv. viðskiptaráðherra svari þessu á þingskjali. Þetta var sannleikurinn í málinu, þetta svar íslensku ríkisstjórnarinnar á þessum tíma: Við ætlum að borga. Það var svarið.