137. löggjafarþing — 49. fundur,  11. ág. 2009.

kjararáð o.fl.

114. mál
[16:55]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ræða hv. þm. Helga Hjörvars, formanns efnahags- og skattanefndar, olli mér miklum vonbrigðum. Við áttum orðastað og mjög góða umræðu síðast á milli umræðna þegar þetta mál bar á góma. Ég tel að sú umræða sem þá fór fram milli þingmanna meiri hluta og minni hluta hafi verið málefnaleg og góð. Þar fóru menn yfir augljósa galla á þessu máli og hv. þm. Helgi Hjörvar hafði um það góð orð að farið yrði vel yfir málið. Ég man að ég hvatti hann mjög til þess og ég hafði trú á því að hv. þingmaður mundi beita sér í málinu til að taka af því augljósa vankanta því að það er ekki hægt að afgreiða þetta sem smámál vegna þess að það snerti svo fáa og muni ekki hafa neinar afleiðingar.

Hér voru heilbrigðismálin rædd í andsvari hjá hv. þm. Ragnheiði Elínu Árnadóttur og hv. þm. Helga Hjörvar. Formaður efnahags- og skattanefndar, hv. þm. Helgi Hjörvar benti réttilega á að það mundi snerta mjög fáa þar. Það er svolítið lagt í með því að segja fáir, það er nákvæmlega, einn í þessum geira sem veltir yfir 100 milljörðum kr. á fjárlögum, það snerti einstakling. Ég sagði í umræðunni að það eina sem vantaði væri kennitalan á viðkomandi einstaklingi. Það er forstjóri Landspítalans. Forstjóri Landspítalans er Hulda Gunnlaugsdóttir sem var áður forstjóri á stærri spítala í Noregi og þegar hún flutti heim var nokkurn veginn um sömu launakjör að ræða fyrir hana sem forstjóra Landspítalans og í þeirri stöðu sem hún gegndi áður. En ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar lækkaði laun hjá hæst launuðu starfsmönnum ríkisins um 10%, ef ég man rétt. Síðan eru náttúrlega búnar að vera miklar gengisbreytingar þannig að þetta er um 1/3 af þeim launum sem forstjóri Landspítalans hefur í samanburði við þau laun sem eru í sambærilegum stöðum annars staðar.

Nú skulum við kippa út viðkomandi einstaklingi, hætta að tala um hana, en við skulum tala um heilbrigðisgeirann. Ef við ætlum að ná árangri í heilbrigðismálum, og ég þekki það vel, að halda okkur innan ramma fjárlaga hjá stofnunum og hafa þá þjónustu sem við viljum hafa, sem er afskaplega erfitt verkefni, er algerlega ljóst að við þurfum að hafa mjög hæfa stjórnendur. Reynslan sýnir, og þá höfum við horft til annarra landa, sérstaklega Norðurlandanna, að heilbrigðisstarfsmenn hafa reynst ákaflega farsælir stjórnendur. Auðvitað er það ekki algilt en vegna sérhæfingar á þessu sviði hafa heilbrigðisstarfsmenn reynst vel alla jafna og eru í forustu fyrir þessar stærstu stofnarnir og þessar smærri líka. Um 160 einstaklingar bara á Landspítalanum eru með hærri laun en forstjóri Landspítalans þegar við erum búin að breyta þessum lögum.

Ef við gefum okkur að þar séu einhverjir starfsmenn sem geta orðið hæfir, og nú er t.d. afskaplega hæfur einstaklingur sem gegnir stöðu forstjóra Landspítalans, hví skyldi viðkomandi einstaklingur fara í erfiðara starf með meiri ábyrgð fyrir miklu lægri laun? Fyrir breytingar eru einstaklingar með mun hærri laun en forstjórinn og þannig verður það alltaf. Ég tek hér heilbrigðisstarfsmenn sem dæmi en það er alveg örugglega hægt að taka fleiri dæmi, það er sá hópur fólks sem við erum í sérstakri samkeppni um við önnur lönd. Okkar vel menntaða starfsfólk getur auðveldlega gengið í störf nokkurn veginn hvar sem er í heiminum. Það er alveg ljóst að á Norðurlöndunum eru menn byrjaðir að bera víurnar í okkar fólk. Læknar koma ekki heim úr námi eins og þeir gerðu áður og það er alveg ljóst að það verður sérstaklega sótt á okkar fólk og stjórnendur.

Ég vil spyrja hv. þm. Helga Hjörvar, vegna þess að þegar við ræddum þetta fannst mér umræðan vera góð. Við tókum sérstaka umræðu um heilbrigðisstarfsemina, sérstaklega um þann sérkennilega vinkil að hér er um einn starfsmann í einum geira að ræða sem lögin munu taka til, en eins og við erum öll sammála um var það ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sem fór strax í að lækka laun þeirra hæst launuðu í hinu opinbera kerfi, það var eitt af hennar fyrstu verkefnum. En við erum búin að vera að fikra okkur í þá átt að reyna að koma meiri reglu í launakerfi hins opinbera. Til þess var kjararáð sett á laggirnar. Eins og kom fram hjá hv. þm. Ragnheiði Elínu Árnadóttur horfði hún í kristalskúlu og sá hið augljósa, hvað mundi gerast, en það er líka í gangi núna. Það kom alveg fram hjá öllum þingmönnum í meiri og minni hluta, menn eru algerlega tilbúnir í þá vinnu að endurskoða launakerfið eins hratt og mögulegt er, sérstaklega hjá þeim sem mest hafa.

Hér er mál sem hefur augljósa galla en ekkert sérstaklega marga kosti. Eins og við nefndum hefur þetta kannski fyrst og fremst einhvers konar áróðursgildi en gæti haft mjög slæmar afleiðingar. Ef við fáum ekki hæfa stjórnendur yfir stærstu stofnunum, fjárfrekustu stofnunum hins opinbera mun það annaðhvort koma niður á þjónustunni eða rekstrinum eða hvoru tveggja. Þetta eru gríðarlega erfið störf og við erum í samkeppni um fólk hvað þetta varðar við önnur lönd. Við eigum sem betur fer menntakerfi á heimsmælikvarða sem gerir það að verkum að okkar fólk getur farið og starfað hvar sem er. Það er ekki þannig að það þurfi að hafa frumkvæði, það er haft frumkvæði að því að sækja þetta fólk. Mér fannst umræðan vera með þeim hætti að efnahags- og skattanefnd mundi setjast yfir þetta og í það minnsta, ef það ætti að klára þetta mál núna, sníða af því verstu vankantana sem menn voru sammála um í umræðunni að væru á því. Ég heyrði alla vega engin andmæli við þeim áhyggjum sem við veltum upp. Ég vil þess vegna spyrja hv. þingmann, formann nefndarinnar, Helga Hjörvar, sem ég trúi að hafi skilning á þessu máli og hefur oftar en ekki sýnt lipurð, forustu og skynsemi í þeim störfum sem hann hefur tekið að sér, af hverju menn hafa ekki gengið í þetta mál eins og lagt var upp með við lok síðustu umræðu. Við megum passa okkur núna þegar við erum með þessi stóru mál — þau eru svo sannarlega alveg gríðarstór og þá er ég að vísa í Icesave — að við göngum ekki frá málum sem eru smærri. Ég ætla ekki að halda neinu öðru fram, þau eru auðvitað miklu smærri, en við megum ekki kasta til höndunum og ganga frá hlutunum bara til þess að ganga frá þeim og þurfa síðan að fara í einhver viðhalds- og viðgerðarstörf á löggjafarsamkundunni þegar skaðinn er skeður. Enn og aftur minni ég á, og ég veit það og ætla hv. þingmanni ekki að snúa út úr því, ég trúi því að hv. þingmaður muni svara þessum spurningum, að ekki er deilt um að fara þurfi í endurskoðun á þessum málum. Það er ekki deilt um að það er ekki það samræmi sem ætti að vera, það er ekki deilt um að þetta er eitt af þessum verkefnum sem þarf að taka á. En ég heyrði engan mæla því bót að þetta frumvarp væri til þess fallið að reyna að hjálpa til við það. Raunar eru á því augljósir gallar og ég nefndi það sérstaklega og svo við tökum þessa einu stöðu sem þetta kemur við í heilbrigðiskerfinu, svo menn hafi það á hreinu, þá er Landspítalinn 1/3 af útgjöldum heilbrigðisþjónustunnar, hvorki meira né minna. Það hefur fyrst núna á síðustu tveimur árum náðst árangur frá því að spítalarnir voru sameinaðir í rekstri, þrátt fyrir að þjónustan hafi verið aukin. Það væri sorglegt ef við færum til baka hvað þetta varðar og mundum glutra niður þeim árangri sem við höfum náð.

Það er ekkert leyndarmál að við litum til Norðurlandanna sérstaklega. Ég spurði kollega mína á Norðurlöndunum, heilbrigðisráðherrana, á fundi hvað þeir gerðu ef sú staða væri uppi að stofnanir færu fram úr fjárlögum ár eftir ár eftir ár. Þeir skildu ekki spurninguna vegna þess að það viðgengst ekki annars staðar. Þetta var landlægt hér, við vorum að ná árangri, sérstaklega varðandi Landspítalann og að vísu fleiri stofnanir, en það gerðist ekki af sjálfu sér. Ég vonast til þess að ekki verði gengið þannig fram, hvort sem það er heilbrigðisráðherra eða annar ráðherra, sama hver það er, að viðkomandi aðili verði settur í þá stöðu að hann geti ekki séð til þess að allra hæfasta fólkið sem völ er á muni stýra þessum erfiðu stofnunum vegna þess að menn leggja fram frumvarp sem hljómar kannski vel í fréttatíma en gerir hlutina mjög erfiða í framkvæmd.

Virðulegi forseti. Að lokum. Ég vildi gjarnan biðja hv. þm. Helga Hjörvar í mestu vinsemd að svara því af hverju ekki var gengið í þetta verk eins og ég taldi og ég held að allir sem eru í salnum hafi talið að gert yrði milli umræðna.