kjararáð o.fl.
Frú forseti. Við ræðum frumvarp til laga um breytingu á lögum um kjararáð og fleiri lögum sem snýr fyrst og fremst að því að fella æðstu embættismenn opinberra stofnana undir kjararáð. Markmiðið með þessu frumvarpi er að lækka launakostnað hins opinbera um allt að 50 millj. kr. á ári en jafnframt er þess getið í umsögn um frumvarpið frá fjármálaráðuneyti að hugsanlegt sé að lækkun launa næstæðstu stjórnenda í viðkomandi stofnunum eða félögum sem gætu orsakast af lækkun launa forstöðumanna. Andi þessarar löggjafar er sem sagt sá að það eigi að byrja á forstöðumönnum þessara stofnana og fyrirtækja og síðan eigi þau áhrif að smitast út til viðkomandi stofnana.
Þá vil ég, rétt eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson, velta heilbrigðiskerfinu fyrir mér og almennt á hvaða vegferð við erum því að ég tel, óháð því í hvaða flokkum við stöndum, hvort sem við erum í stjórnarmeirihluta eða minni hluta, að við þurfum öll að vita á hvaða vegferð við erum. Í því árferði sem nú er hafa skuldir miðaldra fólks stórhækkað á undangengnum mánuðum, launin eru að lækka og er boðað að þau verði lækkuð enn meira. Búið er að boða það að skattar verði hærri og í ljósi þess að krónan hefur fallið svo gríðarlega er ljóst að starfskjör menntaðra Íslendinga á erlendri grundu í íslenskum krónum hafa tvöfaldast í kjölfar hruns krónunnar. Þá er ástæða til að við stöldrum við og veltum fyrir okkur samkeppnishæfni landsins og kannski sérstaklega hins opinbera og þess besta heilbrigðiskerfis sem komið hefur verið á laggirnar í vestrænum löndum og á heimsvísu. Sjálfur frétti ég um helgina af tveimur fjölskyldum sem eru að selja búslóðir sínar, vel menntað fólk, og flytja til Noregs.
Það sem ég vil segja með þessum fáu orðum sem ég ætla að viðhafa um þetta mál er að við þurfum að passa okkur í því að ganga ekki of langt í því að lækka launin og skera niður þannig að það endi ekki með því að við missum kynslóðina 25–45 ára, barnafólkið, vel menntaða fólkið úr landi vegna þess að allar aðstæður þar, starfskjör og fleira, eru mun betri en hér á landi. Við ræddum þetta á vettvangi efnahags- og skattanefndar og svo ég sé alveg heiðarlegur í því held ég að það sé ekki meiningin hjá ríkisstjórninni að ganga fram með þeim hætti að skerða kjör lækna í þessu landi um helming eða eitthvað slíkt. En við þurfum samt að vara okkur á þessari þróun og það er víðfrægt hvaða leið Bandaríkjamenn fóru í stóru kreppunni upp úr 1930 til að komast út úr henni, þeir skáru mjög mikið niður og þeir gættu mikils aðhalds í útgjöldum hins opinbera. Á sama tíma fækkaði störfum í landinu og það myndaðist eins konar spírall. Það var ekki fyrr en Bandaríkjamenn fóru að auka við verklegar framkvæmdir og auka umsvif og útgjöld ríkisins að efnahagslífið fór að taka við sér. Hann er vandrataður sá meðalvegur sem við verðum að ganga og þó að ég sé að tala almennt um kreppu í sambandi við þetta mál er það frumvarp sem við ræðum hluti af því efnahagsástandi sem blasir við okkur öllum. Við þurfum öll sem eitt að reyna að finna bestu lausnirnar til að rata þennan vandrataða meðalveg. Til að mynda ef við horfum til heilbrigðisstéttarinnar vil ég ekki sjá okkar færustu lækna og hjúkrunarfólk flytjast unnvörpum úr landi. Þess vegna væri gott að heyra skilning forustumanna efnahags- og skattanefndar á því að starfsmenn ákveðinna stofnana geti verið með hærri laun en til að mynda forsætisráðherra eða er það svo að menn ætli sér að ganga mjög langt í þessum niðurskurði? Ég hef þá trú að geri menn það sé verulega mikil hætta á atgervisflótta frá Íslandi, því miður, og þá mun kannski okkar best menntaða fólk verða fyrst til að flytja. Það er, vel að merkja, margt nýkomið úr námi frá útlöndum, skuldar húsnæðislán, skuldar námslán en hefur há laun en þau á að lækka og það á líka að hækka skattbyrðina. Á sama tíma horfir þetta fólk upp á það að aðstæður erlendis hafa breyst gríðarlega, það er eftirspurn eftir starfskröftum þess þar og launin á erlendri grundu eru orðin tvöfalt hærri en þau voru fyrir sex mánuðum. Mér finnst að í þessari umræðu þurfi það að koma fram, og þá kannski sérstaklega frá ráðandi öflum í þessu samfélagi, þ.e. þingmönnum stjórnarmeirihlutans, hvort menn ætli að keyra þennan niðurskurð svo hart fram, og þá kannski sérstaklega í heilbrigðiskerfinu, að þetta geti orðið raunin, þ.e. að enginn læknir eða heilbrigðisstarfsmaður geti verið með hærri laun en forsætisráðherra. Við búum nefnilega við þann veruleika í dag að það eru hundruð lækna sem hafa munu hærri laun og ætla menn sér núna á erfiðum niðurskurðartímum að lækka laun þessarar stéttar með þessum hætti? Ég stend þá í þeirri trú að ef menn ætla sér að fara í mjög harðar aðgerðir í þeim efnum muni verða veruleg liðsfækkun í öflugu liði í heilbrigðisstéttinni sem við höfum búið að um árabil. En þetta eru almennar áhyggjur sem ég vildi reifa í þessu efni.
Við höfum lækkað laun þingmanna á Alþingi. Það er búið að lækka laun skrifstofumanna í ráðuneytum og laun ráðuneytisstjóra, við höfum svo sem byrjað á þeim endanum. Sjálfur hef ég talað fyrir því að það þurfi að lækka útgjöld hins opinbera og það þarf að gera með einhverjum hætti. Ef við tökum tillit til þess að 70–75% af útgjöldum ríkisins eru laun segir það sig sjálft að eitthvað verður að gera í þeim pósti líka en það er spurning um aðferðafræðina og hversu hratt og djarft menn ætla í þessar aðgerðir. Mér finnst mikilvægt að við fáum einhverjar upplýsingar um það í þessari lokaumræðu frá hv. þingmönnum og forustumönnum nefndarinnar því að þetta er vandasamt mál og við megum ekki stuðla að því að Ísland verði mikið láglaunaland. Að þeir fari til útlanda sem hafa mestu menntunina og bestu tækifærin og eftir séu færri bök í landinu til að bera þær gríðarlegu skuldabyrðar sem blasa við okkur öllum. Það verður mjög erfitt að kljást við. Við þurfum á þessu fólki að halda. Ég er mjög hræddur um það að öllu óbreyttu, reyndar deila menn um þetta, að við getum horft á sama atgervisflótta úr landi eins og Færeyingar gerðu í upphafi 10. áratugar síðustu aldar og þeir voru mörg ár að vinna sig út úr því. Þess vegna þurfa skilaboð stjórnvalda að vera mjög skýr og reyndar hefði ég viljað ganga lengra. Ég veit að hv. þm. Lilja Mósesdóttir er mér sammála um það. Ég hefði viljað koma til móts við skuldug íslensk heimili fyrir mörgum mánuðum, þá kynslóð sem ég hef talað um, fólk á aldrinum 25–45 ára sem er með gríðarlega miklar skuldir. Það fólk átti skilið einhverja leiðréttingu á því efnahagshruni sem hér varð sem forustumenn fyrrverandi þriggja stærstu bankanna stóðu m.a. að með áhlaupi á íslensku krónuna sem hleypti verðbólgunni upp, við þekkjum öll þá sögu. En því miður hafa allt of margir mánuðir liðið í aðgerðaleysi, án þess að þessari kynslóð, skuldugustu kynslóð Íslandssögunnar, hafi verið hjálpað. Ég bið menn í að fara mjög varlega í að stórlækka laun þessarar sömu kynslóðar sem eytt hefur miklum fjármunum í að afla sér víðtækrar menntunar og skuldar þar af leiðandi námslán, húsnæðislán, eins og ég sagði áðan. Og ef við ætlum að fara að lækka launin hjá þessu fólki og hækka skattana á sama tíma og fólk horfir upp á að húsnæðislán þess hafa jafnvel tvöfaldast er ég alveg viss um, eins og ég heyrði um helgina hjá þessum tveimur fjölskyldum sem eru að selja búslóðir sínar og flytja til Noregs, að fleiri munu flytja til útlanda. Það er áhyggjuefni fyrir okkur öll því að þá munu mun færri standa undir þeim skuldbindingum sem við höfum tekið á okkur og hugsanlega þeim skuldbindingum sem munu felast í þeim víðfrægu Icesave-samningum sem vonandi verða ekki samþykktir á þessu þingi. Ef þeir verða samþykktir verður vaxtabyrðin ein frá áramótum 24 milljarðar kr., 24 þúsund milljónir, og ég hef ekki enn fengið skilið af hverju við eigum að greiða vexti frá áramótum en ekki frá þeim degi sem við skrifuðum undir það samkomulag, ef það verður samþykkt sem ég vona að verði ekki, því að 24 milljarðar er mikið fé. Það má reka Landspítala – háskólasjúkrahús í níu mánuði þar sem þúsundir manna vinna, stærstu vinnustöð landsins, fyrir þessa 24 milljarða sem samninganefnd ríkisins skrifaði undir með fyrirvara um stuðning Alþingis að Íslendingar ættu að undirgangast.
Þess vegna er hætta á, ef okkur fækkar og okkar besta fólk fer að flytjast af landi brott, vonandi þá tímabundið, að það verði enn þá erfiðara fyrir okkur og jafnvel ómögulegt að standa undir öllum þeim skuldbindingum sem við höfum þurft að takast á hendur í kjölfar þessa efnahagshruns. Ég vildi því í stuttri ræðu koma með almenn sjónarmið og hugleiðingar um það á hvaða vegferð við erum. Í nefndinni leyfir formaður hennar mjög frjálsleg skoðanaskipti og mér finnst að þar hlusti menn hver á annan hvort sem þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu og þannig þarf það að vera miklu víðar á vettvangi þingsins. En ég tel því miður að hæstv. ríkisstjórn hafi gersamlega horfið frá því, hafi hún einhvern tíma ætlað sér það, að eiga samráð við okkur í stjórnarandstöðunni. Þótt við höfum komið fram með margar hugmyndir og tillögur um úrbætur í efnahagsmálum, málefnum fjölskyldnanna, hefur ekkert af þeim tillögum verið tekið til greina sem er miður því að nú eru liðnir margir mánuðir og fer að styttast í að ár sé liðið frá efnahagshruninu stóra. Mér hefur fundist vanta að menn kæmu með heildstæða framtíðarsýn og helst hefðum við öll þurft að sameinast um það á þinginu. En því miður eru menn enn í skotgrafarhernaðinum, ráðherrar í ríkisstjórninni keppast við að tala niður þær hugmyndir sem þingmenn Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Borgarahreyfingarinnar hafa komið fram með og okkur hefur ekki orðið neitt ágengt í þeim efnum. Það er miður og það er verst fyrir heimilin í landinu. Í því samhengi segi ég að við skulum fara varlega í því að stórskera niður laun opinberra starfsmanna og stórskera niður lífskjörin í landinu vegna þess að það hefur gríðarlega mikið hrun átt sér stað. Það getur vel verið að fyrir vel menntað fólk verði það miklu betri kostur að flytja af landi brott, yfirgefa ættjörð sína. Það er örugglega þyngra en tárum taki fyrir okkur þingmenn að horfa upp á slíka þróun ef hún brýst fram af alefli, rétt eins og frændur okkur í Færeyjum þurftu að upplifa upp úr 10. áratug síðustu aldar.