kjararáð o.fl.
Frú forseti. Ég held að ég hafi ekki misskilið það frumvarp sem við ræðum. Ég held að við höfum sameiginlegan skilning um það hvaða afleiðingar frumvarpið eitt og sér mun hafa gagnvart forstöðumönnum þessara stofnana. En hins vegar beindi ég spurningum mínum um heilbrigðiskerfið m.a. til hv. þm. Lilju Mósesdóttur. Mér finnst skipta miklu máli í þessari umræðu að við fáum á hreint hvort það sé virkilega stefna ríkisstjórnarinnar að skera laun lækna niður, jafnvel um 50%, eða hver er stefnan? Það er svo mikilvægt að héðan frá Alþingi berist skýr skilaboð þannig að fólk viti í raun og veru hvert stefna skal, hvert ríkið ætlar að stefna í þessum efnum. Það er með því hugarfari sem ég kom inn í þessa umræðu að ég tel hættu á atgervisflótta hjá okkar hæfasta fólki, sérstaklega í heilbrigðisgeiranum, og ég lagði þess vegna sérstaka áherslu á að við þyrftum að fá það á hreint hver afstaða forustumanna nefndarinnar væri gagnvart þeim stéttum, þ.e. heilbrigðisstéttunum. Svo get ég alveg tekið undir með hv. þingmanni að það mátti leiðrétta starfskjör í gömlu, stóru bönkum, ég held að landsmenn séu okkur sammála um að þar mátti vera miklu meira hóf og meira samræmi á milli hlutanna. Að sjálfsögðu get ég tekið undir það.
Ég nefni þetta í þessu samhengi og reyndar líka heildarsamhengið, Icesave-samningana sem hv. þm. Lilja Mósesdóttir hefur verið mjög gagnrýnin á, og fleira, leiðréttingu á lánum til handa heimilum. Ef við horfum upp á stórfelldan fólksflótta úr landinu segja allar greiningar á skuldaþoli þjóðarinnar okkur að þá er mjög ólíklegt að íslenskt þjóðarbú geti til framtíðar staðið undir þeim skuldbindingum sem blasa við okkur í dag.