kjararáð o.fl.
Virðulegur forseti. Mér finnst hv. þingmaður, bara þannig að tekin séu af tvímæli um það, ekki hafa komið seint fram með ábendingar sínar. Ég tel að hv. þingmaður hafi gert það hátt og skýrt og málefnalega. Þær hafi verið rökstuddar og eru sannarlega ákveðið sjónarmið. Það er ekkert nema virðingarvert að hæstv. fyrrverandi heilbrigðisráðherra taki hér upp það sem snýr að þeim málaflokki sem hann hefur áhyggjur af. Þó að málið sé lítið og varði lítinn hóp má auðvitað segja, eins og hann gerir, að þetta sé stórmál því að við erum að fara í gegnum tíma kjaraskerðingar og það er stórmál með hvaða hætti hún bitnar á fólki. Við leggjum áherslu á að í því verði líka nokkrar jöfnunaraðgerðir vegna þess að hér hefur auðvitað orðið mjög vaxandi launamunur á síðustu árum og sú ofurlaunastefna sem fylgdi aðdraganda hrunsins, ekki bara á Íslandi heldur um allan heim, stefndi okkur í nokkra blindgötu og ekki keyptum við alltaf samkeppnishæfasta fólkið eða besta fólkið fyrir hæstu launin, a.m.k. reyndust það ekki vera bestu bankastjórarnir sem fengu hæstu launin.
Ég held þess vegna að það sé mikilvægt að ríkið taki til í sínum ranni og setji skýr mörk varðandi hvað stjórnendur hjá ríkinu eiga að vera með í laun og að forsætisráðherra sé krónan á því tré því að hann ber auðvitað langmesta og víðtækasta ábyrgð og hefur mestar starfsskyldur. Menn hljóta að horfa til þess þegar kjararáð ákvarðar laun að að baki því liggi málefnaleg sjónarmið og að eðlilegt sé að fylgja fram þeirri stjórnarstefnu þó að vissulega kunni að vera á því ýmsir annmarkar eins og þingmenn hafa tilfært með ýmsum rökum við þær umræður sem hér hafa farið fram.