137. löggjafarþing — 50. fundur,  12. ág. 2009.

yfirtaka fyrirtækja.

92. mál
[15:20]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Árni Johnsen) (S):

Virðulegi forseti. Fyrirspurn mín til hæstv. viðskiptaráðherra varðar yfirtöku fyrirtækja. Það er grundvallaratriði í einu þjóðfélagi að atvinnulífið gangi, grundvallaratriði númer eitt, tvö og þrjú að hjól atvinnulífsins snúist. Það virðist vera víða maðkur í mysunni í þessum efnum við þær hremmingar sem yfir hafa dunið að grípa til ráða, hratt og ákveðið, markvisst með verksvit að leiðarljósi. Einn af þeim þáttum sem gengið hefur hægt að sigla fram að því er virðist er framgangur tengdur bönkunum.

Mín fyrirspurn í þessum efnum til hæstv. viðskiptaráðherra varðar það hvaða aðferðafræði hefur verið beitt til yfirtöku fyrirtækja af hálfu banka og skilanefnda. Í öðru lagi, hefur verið reynt til hins ýtrasta að láta fyrirtækin standa? Í þriðja lagi, hefur jafnræðis verið gætt að fullu?