yfirtaka fyrirtækja.
Virðulegi forseti. Ég þakka hvatningu hv. þingmanns og tek undir orð hans um mikilvægi þess að þessari vinnu sé hraðað eins og unnt er. Það er reyndar hægt að benda á að það hafa um margt skapast betri aðstæður og eru að skapast betri aðstæður til að flýta þessari vinnu nú en var rétt eftir hrunið því að nú er fjárhagur nýju bankanna allur að skýrast og reyndar einnig eignarhald þeirra. Og það er vitaskuld eitt af því sem þarf til að bankarnir sjálfir geti aðstoðað fyrirtæki að málefni bankanna sjálfra séu á hreinu og að þeir séu vitaskuld vel fjármagnaðir með nægt eigið fé og laust fé. Það er og hefur verið að færast í rétta átt og það ætti að flýta því að bankarnir geti aðstoðað viðskiptavini sína við fjárhagslega endurskipulagningu sem vissulega er mjög brýnt verkefni, eins og hv. þingmaður benti á.