137. löggjafarþing — 50. fundur,  12. ág. 2009.

vaxtarsamningar á landsbyggðinni.

143. mál
[18:22]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F):

Virðulegi forseti. Ég vil eins og aðrir þakka fyrir fyrirspurnina og svör ráðherra. Það sem ég velti fyrir mér er tvennt, það er annars vegar að mig langar að forvitnast hjá ráðherra varðandi þessar sóknaráætlanir, á hvaða stigi þær eru og hvenær við megum búast við að þær séu tilbúnar og fari þá að rúlla og virka.

Hins vegar vil ég gefa hæstv. ráðherra góð ráð, að skoða mjög vandlega þá fjármuni sem iðnaðarráðuneytið setur í vaxtarsamninga, aðra samninga, í nýsköpun almennt og atvinnuráðgjöf og atvinnuþróun. Að skoða hve mikið af því fjármagni fer í raun aftur til ríkisins án þess að það hafi viðkomu og skapi eitthvað á þeim stöðum þar sem fjármagnið á að fara. Vegna þeirrar reynslu sem ég bý þó yfir eftir að hafa komið nálægt atvinnuþróunarmálum veit ég að það eru miklir fjármunir sem ríkið veitir í svona verkefni sem það tekur aftur til sín til þess að viðhalda einhverju batteríi hjá sér.