137. löggjafarþing — 50. fundur,  12. ág. 2009.

vaxtarsamningar á landsbyggðinni.

143. mál
[18:24]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir góð svör, þau gleðja mig svo sannarlega. Ég tala af reynslu af því að sitja í stjórn Atvinnuþróunarfélags Suðurlands þegar verið var að koma þessum samningum á og við veltum talsvert fyrir okkur til hvers þeir væru og hverju þeir ættu að skila. Ég hef orðið vitni að því að þeir skila miklu og satt best að segja hefur þessi útfærsla, eins og við gerðum hana á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum, haft þau áhrif að menn hafa tekið hana upp eftir okkur á öðrum svæðum við endurnýjun samninga m.a. til þess að nýta fjármuni betur.

Það er líka gleðilegt að þrátt fyrir að hér sé stundum skipt um stjórn og pólitískar áherslur að menn geti nýtt góða hluti áfram og það var þá ekki allt slæmt sem gert var í fortíðinni. Það er mjög mikilvægt í smáum flokki eins og atvinnumálum að menn hafi langa framtíðarsýn og haldi sér lengi á sömu línunni því að hún skilar ekki alltaf arði einn, tveir og þrír, það þarf stundum að gefa sér svolítinn tíma í að skapa fleiri ný störf og annað í þeim dúr.

Ég vil þakka ráðherranum kærlega skýr svör og ég held að þetta séu svör sem þeir sem vinna við þetta um land allt hljóti að gleðjast mjög yfir að heyra, að þessari stefnu skuli haldið áfram. Að sjálfsögðu þarf að endurbæta hana á öllum vígstöðvum en ég held að við séum á réttri leið hvað þetta varðar.