stuðningur vegna fráveituframkvæmda.
Virðulegi forseti. Stuðningur ríkisins við fráveituframkvæmdir sveitarfélaga er byggður á lögum frá 9. mars 1995 nr. 53. Þeim hefur verið breytt í þrígang og síðasta breyting tengdist lengingu laganna, þ.e. því ákvæði hversu lengi hægt er að koma til stuðnings sveitarfélögunum við fráveituframkvæmdir. Í því fólst að lengja tímabilið frá 31. desember 2005 til 31. desember 2008, þannig að lögin virðast vera því miður útrunnin hvað þetta varðar.
Spurningin er því: Hvað tekur við? Hvað hyggst hæstv. umhverfisráðherra gera til að bregðast við því ásamt þeirri staðreynd að á liðnum árum hafa sveitarfélög fengið sífellt minni hluta endurgreiðslunnar til baka, jafnvel fullkomna afneitun vegna þess að engir fjármunir voru til. Ég þekki til sveitarfélaga sem voru í framkvæmdum á árinu 2008, árinu sem gildistími laganna stóð til, og fengu ekki eina einustu krónu endurgreidda af þeim framkvæmdum og aðeins hluta af árinu 2007.
Frú forseti. Í frumvarpinu með upphaflegu lögunum var fjallað um kostnað á landsvísu og einnig á íbúa. Kostnaður á íbúa var áætlaður um 30–90 þús. kr. og að meðaltali var kostnaður reiknaður 40.000 kr. Áætlaður kostnaður á landsvísu til þess að koma fráveitukerfinu í þokkalegt lag var því talinn vera 10 milljarðar. Þetta var unnið af nefnd sem hafði lagst yfir þetta nokkuð ítarlega. Ýmislegt hefur gerst á þeim langa tíma sem síðan hefur liðið. Kröfur hafa vaxið, m.a. kröfur ríkisins. Kostnaður hefur aukist gríðarlega og einnig eru þær framkvæmdir sem þarf að fara í, ákaflega ólíkar eftir því hvort um er að ræða þéttbýli eða dreifbýli, hvort byggðin er við sjó eða stórfljót — sem er öflugur viðtaki samkvæmt þeirri hugmynd að lengi taki sjórinn við — eða langt inni í landi.
Staðreyndin er sú að kostnaður á íbúa er gjarnan tíu sinnum hærri eða 300–500 þús. kr. og í einstaka tilfellum mun hærri, jafnvel ein millj. á íbúa. Dæmi má taka af 1.000 manna sveitarfélagi með þrjá byggðarkjarna inni í landi með auk þess sífellt þéttari byggð. Kostnaður þessa sveitarfélags við fráveitu hefur verið áætlaður milli 800 og 1.000 millj. en ársvelta sveitarfélagsins er 600 millj. Hvernig á þetta sveitarfélag að geta staðið undir þessu?
Því spyr ég hæstv. umhverfisráðherra hvernig hún hyggst bregðast við þeirri staðreynd að engir fjármunir eru til og að lögin eru útrunnin. (Forseti hringir.) Hvort það sé hægt að framlengja þau og einnig hvernig hægt sé að koma til móts við þau sveitarfélög sem hafa ekki fengið lögboðin framlög á sl. árum.