137. löggjafarþing — 51. fundur,  13. ág. 2009.

staða heimila og fyrirtækja.

[10:51]
Horfa

félags- og tryggingamálaráðherra (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég tek undir að það er mikilvægt að ræða þessi mál á málefnalegan hátt og á grundvelli þeirra tillagna sem lagðar hafa verið fram. Hér var lögð fram í sumar tillaga Framsóknarflokksins um 20% niðurfellingu skulda. Þeirri tillögu er ég ekki sammála og um hana var mjög málefnaleg umræða heilan dag í þingsal. Í henni tók ég þátt og fleiri stjórnarliðar og hér varð mjög málefnaleg umræða um tillöguna.

Ég kannast ekki við að Sjálfstæðisflokkurinn hafi keypt hráar tillögur hv. þm. Tryggva Þórs Herbertssonar um niðurfellingu skulda heimilanna. (Gripið fram í.) Hafi það gerst og farið fram hjá mér biðst ég velvirðingar á því. (Gripið fram í.) Hitt stendur eftir að okkur hefur tekist að koma í veg fyrir greiðsluþrot fólks, það er ekki fjölgun á árangurslausu fjárnámi eða gjaldþrotum einstaklinga. Hins vegar sjáum við vanskil aukast hratt. Það er sá vandi sem við (Forseti hringir.) þurfum að taka á og við þurfum að vinna okkur í gegnum hann. Ég hlakka til að eiga gott og uppbyggilegt samstarf við stjórnarandstöðuna um það mál.