útflutningsálag á fiski.
Virðulegi forseti. Ég ber fram fyrirspurn til hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og er hún ekki ný af nálinni. Ég lagði fram þessa fyrirspurn í þinginu 14. júlí og bar hana síðan upp í munnlegum fyrirspurnum í gær. Ég gerði engar athugasemdir við að þeirri fyrirspurn sem ég lagði fram 14. júlí átti að svara í síðasta lagi átta virkum dögum seinna en hins vegar geri ég athugasemdir við að ráðherrann er nú búinn að hafa heilan mánuð sem er mun lengri tími en ætlaður er til þess að svara þessari einföldu fyrirspurn sem flokkast undir brýnar aðgerðir í stjórnarsáttmálanum. Hann gerði það ekki í gær og því fer ég fram á það við hæstv. ráðherra að hann svari núna.
Ég geri engar athugasemdir við að hæstv. ráðherra hefur þann stíl að þegar hann talar notar hann mörg orð en kannski ekki jafnmikið af efni. Það er auðvitað val hæstv. ráðherra. Ég geri hins vegar athugasemdir við að þessari einföldu fyrirspurn minni skuli ekki hafa verið svarað enn og vil fá svar við henni.
Fyrirspurnin er einfaldlega þessi: Hyggst ráðherrann leggja útflutningsálag á fisk, samanber ákvæði stjórnarsáttmálans þar um?
Ég vek athygli á því að í stjórnarsáttmálanum er þetta flokkað undir brýnar aðgerðir. Ég vek athygli á að þeim góða tíma sem hæstv. ráðherra hafði í gær til að svara spurningunni eyddi hann í allt annað en að svara fyrirspurn minni efnislega. Ég geri því aftur tilraun til þess að fá svar frá hæstv. ráðherra um fyrirspurn sem ég bar upp í gær og lagði fram 14. júlí.