útflutningsálag á fiski.
Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort einhver skildi þetta svar en það væri þá ágætt að fá upplýsingar um það.
Ég ætla að gera eina tilraun í viðbót. Það hefur komið fram að hæstv. ráðherra er búinn að upplýsa um að hann sé að hugsa um þessi mál og það er auðvitað ágætt svar. En ég ætla að gera eina heiðarlega tilraun til að kanna hvort hæstv. ráðherra vilji nú upplýsa þingið um hvort hann sé kominn eitthvað lengra en að hugsa málið sem er í stjórnarsáttmálanum undir brýnum aðgerðum. Ég held að það væri upplýsandi fyrir alla aðila, sérstaklega þá sem starfa að sjávarútvegi og alla þá sem bera hag sjávarútvegsins fyrir brjósti. Við vitum að sjávarútvegurinn hefur verið og er, sérstaklega núna, mikilvæg undirstöðuatvinnugrein fyrir landsmenn. Það er mjög æskilegt að hæstv. ráðherra tali skýrt (Forseti hringir.) og upplýsi þingið um fyrirætlanir sínar.