útflutningsálag á fiski.
Frú forseti. Ég tala skýrt, það er skilningur þingmannsins sem er eitthvað brogaður. Markmiðið í stjórnarsáttmálanum er að auka vinnslu á fiski hérlendis og að draga úr útflutningi.
Ég spyr hv. þingmann: Hver er stefna Sjálfstæðisflokksins í þeim málum? Er hún engin eða finnst hv. þingmanni það allt í lagi að hér hafi farið líklega milli 60 og 70 þúsund tonn af botnfiski til vinnslu erlendis? (Gripið fram í.) Þessi mál verða skoðuð og þetta er eitt af þeim markmiðum sem við höfum sett okkur. Það er mjög brýnt að tryggja fiskvinnslunni hér á landi samkeppnishæf skilyrði við fiskvinnslur erlendis. (Gripið fram í.) (Forseti hringir.) Þetta verður skoðað með öðrum aðgerðum sem gripið verður til.