tekjuskattur.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum.
Með þessu frumvarpi er ætlunin að veita skattyfirvöldum auknar heimildir til varnar því að aðilar sem sæta rannsókn hjá skattrannsóknarstjóra geti komið sér undan greiðslum opinberra gjalda og mögulegra fésekta vegna skattalagabrota með því að koma undan eignum á meðan rannsókn er í gangi. Rannsóknir á mögulegum skattalagabrotum geta verið umfangsmiklar og tímafrekar og hætta getur skapast á að aðilar sem til rannsóknar eru komi eignum undan á meðan á meðferð máls stendur, ekki síst við þær mjög svo sérstöku aðstæður sem nú ríkja í okkar samfélagi. Með frumvarpinu er lagt til að yfirvöld geti, að sjálfsögðu ekki nema þegar ástæða þykir til, krafist kyrrsetningar eigna hjá einstaklingum og lögaðilum og annarra tryggingarráðstafana vegna rannsóknar á hugsanlegum skattalagabrotum hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins.
Lagt er til að heimilt verði í málum sem sæta rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins að krefjast kyrrsetningar hjá skattaðila og öðrum sem grunur um skattalagabrot beinist að ef hætta er talin á að eignum kunni ella að verða skotið undan, þær glatist eða þær rýrni. Einnig er lagt til að heimilt verði að krefjast kyrrsetningar hjá aðilum sem bera ábyrgð á skattgreiðslum samkvæmt 116. gr. laga um tekjuskatt.
Lagt er til að tollstjóri annist rekstur þeirra mála sem hér um ræðir og skal hann meta hvort og til hvaða aðgerða skuli grípa til þess að tryggja megi skaðlausar efndir væntanlegrar skattkröfu, sekta og sakarkostnaðar. Getur hann krafist þess að skattaðili leggi fram tryggingar vegna þessa. Eftir atvikum getur tollstjóri krafist kyrrsetningar á eignum skattaðila að því marki sem nauðsynlegt er til að varna því að eignum verði komið undan eða að þær fari með öðrum hætti forgörðum.
Í frumvarpinu er lagt til að kyrrsetning falli niður um leið og ljóst þykir að rannsókn muni ekki leiða til hækkunar á sköttum eða til fésektar á hendur þeim sem til rannsóknar er. Jafnframt að kyrrsetningarráðstafanir falli niður ef viðkomandi leggur fram tryggingar vegna væntanlegrar skattkröfu að viðbættri fésekt og sakarkostnaði sem tollstjóri telur fullnægjandi.
Frú forseti. Þetta frumvarp er einfalt í sniðum. Það er liður í miklu víðtækari aðgerðum stjórnvalda til að ná fram réttlæti í tengslum við þá atburði sem orðið hafa í samfélagi okkar. Það er liður í aðgerðum til þess að gæta hagsmuna hins opinbera og skattborgaranna þannig að fjármunir glatist ekki og verði til staðar eftir atvikum til að bæta það tjón sem orðið er eða þau brot sem kunna að hafa verið framin í þessum efnum þó að gildi þess sé að sjálfsögðu almenns eðlis og það muni eiga við viðkomandi tilvik í skattalegum efnunum án tillits til uppruna eða aðdraganda þeirra atburða sem í hlut eiga.
Ég mæli svo með því, frú forseti, að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. efnahags- og skattanefndar.