tekjuskattur.
Virðulegi forseti. Ég vil sem formaður efnahags- og skattanefndar þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir fram komið mál og hlakka til að fást við það í nefndinni. Skatteftirlit og heimildir skattyfirvalda hafa verið allt of takmarkaðar og það höfum við vitað frá því löngu fyrir hrun. Hér hefur legið fyrir að gríðarlegum fjárhæðum er skotið undan á hverju ári og löggjöfin hefði fyrir löngu mátt taka sig saman í þeim efnum og styrkja og auka heimildir skattyfirvalda. Fullt tilefni er til að ráðast í það núna, ekki síður eftir hrunið af þeim augljósu ástæðum sem þar bættust við. Um leið og við þurfum að styrkja heimildirnar, auka eftirlitið, agann og aðhaldið á þessu sviði eins og öllum öðrum sviðum fjármála í okkar samfélagi er líka mikilvægt, eins og kemur fram hjá hv. þm. Pétri H. Blöndal, að gæta að grundvallarsjónarmiðum réttarríkisins. Ég hef ekki áhyggjur af því að málið lúti að fólki þar sem áætlanir hafa verið gerðar um skattgreiðslur, enda lýtur það að heimildum til skattrannsóknarstjóra en ekki til skattstjóra. Það lýtur að fólki sem sætir skattrannsókn en ekki fólki sem sætt hefur áætlunum en okkur gefst tækifæri til að fara yfir þetta í nefndinni.
Ég tek undir það sjónarmið hv. þingmanns að sú umfjöllun þarf að vera töluverð. Við verðum að fá til okkar sérfræðinga sem við teljum vert að fari í gegnum málið og taka þann tíma sem þarf í þá umfjöllun. Ég held að það sé út af fyrir sig ekki eftir neinu að bíða. Við getum skotið á fundi þegar á morgun og hafið slíka umfjöllun og gefið okkur þann tíma sem við þurfum til þess. Það þarf samt ekki að taka einhver missiri þótt nefnd gefi sér góðan tíma í að vinna vel úr svona máli. Ég held að eftir því sé sannarlega kallað að við á þessu sviði herðum á aganum, reglunum og heimildum eftirlitsaðila til að tryggja að hér sé farið að lögum og góðum venjum. Um leið þarf að gæta sjónarmiða um meðalhóf eins og hv. þm. Pétur H. Blöndal hefur haldið til haga og ég er viss um að er sjónarmið sem allir nefndarmenn deila.
Auðvitað er þó ákaflega mikilvægt að þegar rannsóknaraðilar telja sterk efnisleg rök fyrir því að grípa til úrræða sem þessara séu þau tiltæk. Að menn geti ekki brugðið sér undan lögunum eða sett á flækjur til að koma sér undan þeim leikreglum sem við höfum sett og þingmenn og þjóðin ætlast til þess að fylgt sé eftir og framfylgt. Ég held að það sé reynsla okkar að heldur sé ástæða til að styrkja slíkar heimildir. Við höfum m.a. fengið til umfjöllunar í þinginu yfirgripsmikla skýrslu um stöðu skattamála þar sem fram kemur að gríðarlegum fjárhæðum — ég hygg að ég muni rétt að það sé á þriðja tug milljarða kr. — er skotið undan skatti árlega. Nú þegar harðnað hefur á dalnum og mikilvægt er að leita allra leiða til að fá þær tekjur í ríkissjóð sem á þarf að halda til að sem allra minnst þurfi að skerða velferðarþjónustuna vegna þessa efnahagslega veruleika sem við horfumst í augu við — einmitt nú er ríkari ástæða en nokkru sinni fyrr til að tryggja að eftirlit og heimildir manna, sem fylgja eftir þeirri tekjuöflun sem við í þessum sal höfum ákveðið, séu sannarlega til staðar og tiltækar.
Menn munu þó, við bæði þessa lagasetningu, framkvæmd hennar og úrskurði í málum ef ágreiningur rís og vísa þarf til dómstóla, gæta sjónarmiða um meðalhóf og þess að ekki sé ráðist að fólki sem af einhverjum ástæðum hefur ekki verið fært um að telja fram. Ég þekki ágætlega stóra hópa þeirra sem hv. þm. Pétur H. Blöndal nefndi, sem einfaldlega eru ekki færir um að telja fram sjálfir af ýmsum ástæðum, oftast heilsufarslegum. Auðvitað er ástæða til að huga alltaf að slíkum hópum en ég tel ekki að frumvarpið beinist að þeim. Frumvarpið beinist fyrst og fremst að því að heimildir séu til að grípa til aðgerða gegn ætluðum brotamönnum til að koma í veg fyrir að þeir komi undan eignum sem almenningur á réttmætt tilkall til í gegnum ríkissjóð Íslands. Við hljótum þó um leið að vona að sem sjaldnast þurfi að beita þessum heimildum, að skattskil séu almennt ekki með þeim hætti að grípa þurfi margítrekað til þessara úrræða, en það er nauðsynlegt að þau séu til staðar. Almenningur borgar skatta og núna eru kjörin einnig að rýrna og hann gerir auðvitað kröfu um það, eins og við þingmenn, að allir axli þær byrðar og allir standi skil á þeim sköttum. Almenningur þarf í viðbót við skattbyrðarnar að axla ýmsa kjaraskerðingu og mjög óréttlátar byrðar, m.a. í þeim samningi sem hér hefur mikið verið til umfjöllunar um margra vikna skeið. Eðlilega gerir almenningur og við þjóðkjörnir fulltrúar og þjóðþingið kröfu til að það sé gengið eftir því að allir taki þátt í þessu verkefni og þeir embættismenn sem við höfum treyst til að fylgja eftir skattalögum í landinu hafi tól og tæki til að sækja mál þeirra sem reyna að svíkjast undan með einhverjum hætti.
Um leið ítreka ég enn hin almennu sjónarmið sem alltaf eiga við í öllum málum, að við verðum að gæta meðalhófs í framkvæmd laga og fara með mál af þessu tagi sem varðar grundvallaratriði í réttarfarinu í vandaða umfjöllun í nefnd á milli umræðna.