137. löggjafarþing — 52. fundur,  17. ág. 2009.

tilkynning um úrsögn úr þingflokki.

[15:03]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Bhr):

Frú forseti. Mig langar að nota þetta tækifæri og biðja hv. þm. Þráin Bertelsson afsökunar á bréfi sem ég skrifaði og hefur verið í umræðunni síðustu daga. Um mannleg mistök var að ræða. Ætlunin var alls ekki að skaða mannorð hv. þingmanns á nokkurn hátt eða veitast að persónu hans.