137. löggjafarþing — 55. fundur,  20. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[09:45]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil árétta skilning minn á þessari breytingartillögu. Hann er þessi: Ríkisábyrgðin er takmörkuð. Ef efnahagsþróunin á Íslandi verður með þeim hætti sem fjallað er um í breytingartillögunni nær ríkisábyrgðin einungis til þeirrar greiðslugetu sem við Íslendingar getum staðið undir miðað við þá þróun. Eigi sér stað einhverjar viðræður milli aðila eins og fjallað er um í breytingartillögunni og leiði þær til niðurstöðu, við skulum segja ef svo ólíklega vildi til að menn ætluðu að taka það sem út af stæði og ýta því á undan sér, þá er það minn skilningur að fyrir slíku samkomulagi sé engin ríkisábyrgð á grundvelli þessarar breytingartillögu. Þess í stað þurfi þá að koma að nýju til þingsins og leita ríkisábyrgðar vegna slíks samkomulags, þ.e. við meðhöndlum hér ríkisábyrgð sem tekur eingöngu mið af greiðslugetu (Forseti hringir.) íslenska ríkisins og ekki er veitt ríkisábyrgð fyrir neinu umfram það.