ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Klukkan gengur. Við ræðum nú þetta mál sem hefur tekið ansi langan tíma og það er rétt sem kom fram hjá hv. þm. Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, að það skiptir máli að túlkunin sé skýr. Ég vil spyrja hv. þm. Guðbjart Hannesson hvort það sé ekki örugglega hans skilningur að hér séum við að hafna þeim samningi sem var skrifað undir og gera slíkar breytingar að það þýði alvöru breytingar á samningnum. Ég vil fá á hreint hvort það sé ekki túlkun hans eða hvort hann sé sammála forustumönnum ríkisstjórnarinnar sem hafa sagt að þetta sé allt saman innan samningsins, því það skiptir afskaplega miklu máli (Forseti hringir.) að menn hafi á hreinu hvað verið er að gera og að túlkun manna sé skýr.