ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Vegna þess að hv. þingmaður reyndi hér að viðhalda þeirri goðsögn að íslensk stjórnvöld hafi haft löngun til eða tilburði í þá átt að halda einhverju leyndu í þessu máli verð ég einfaldlega að mótmæla því. Það er rangt. Strax við lok samninganna beittu fulltrúar íslenskra stjórnvalda sér fyrir því að unnt væri að upplýsa meira en minna í þessu máli, t.d. að unnt yrði að upplýsa strax opinberlega um lánskjör og vexti sem ekki stóð til af hálfu viðsemjenda okkar. Í framhaldinu var strax hafist handa um að tryggja að hægt væri að gera samningana opinbera eða a.m.k. tryggja að allir alþingismenn fengju þá og aðgang að öllum gögnum. (Gripið fram í: Ekki í upphafi.) Þetta er hægt að sannreyna m.a. með því að skoða bréfasamskipti, tölvupósta, sem áttu sér stað áður en uppkast að samningum frá tilteknu stigi viðræðna barst til fjölmiðla. Þetta eru staðreyndir í málinu.
Meðferð gagna að öðru leyti var síðan unnin í samstarfi við rannsóknarnefnd Alþingis og forseta Alþingis. Ég held að þeirri staðreynd verði ekki á móti mælt að aldrei í þingsögunni hafa fylgt neinu máli ítarlegri og jafntæmandi gögn um viðkvæm atriði og í þessu tilviki. (Gripið fram í: Hvað með undirritun samningsins?)
Ég vil að lokum segja að ég er ósammála því uppleggi sem mér fannst bera á í máli hv. þingmanns að einhverjir sem að þessu máli hafa unnið eða að því komið hafi starfað eða mótað afstöðu sína til þess með nokkuð annað að leiðarljósi en hagsmuni þjóðarinnar. Mér finnst engin ástæða til að gefa í skyn að aðrar hvatir hafi nokkurs staðar legið að baki því hvernig menn hafa komið að þessu máli. Mat manna á því er hins vegar mismunandi og menn geta komist að ólíkri niðurstöðu. Ég held að við eigum ekki að vera uppi með hugleiðingar (Forseti hringir.) um að einhver önnur sjónarmið, aðrar hvatir en þær sem við teljum (Forseti hringir.) þjóna Íslandi best hafi ráðið för í þessu máli.