ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Kristjáni Þór Júlíussyni fyrir spurninguna.
Ég tel að með því að veita þessa ríkisábyrgð — eins og sagði í ræðu minni og margoft hefur komið fram í umræðunni þá er það forsenda fyrir m.a. endurskoðunarákvæði hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum varðandi lánalínur og samskipti okkar við Norðurlöndin og önnur lönd, það er hluti af því sem þarf að gerast. Það er bara svoleiðis hvort sem við viljum tala um það upphátt eða ekki. Það er samt sem áður þannig að þetta hangir saman og það hefur komið ítrekað fram í samskiptum við þá aðila sem um þessi mál fjalla og komið hefur fram í ræðum á þingi hjá stjórnarliðum að þetta hangi saman við það að (Forseti hringir.) geta haldið áfram eða byrjað öllu heldur að endurreisa efnahagslífið.