137. löggjafarþing — 55. fundur,  20. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[19:09]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ástæðan fyrir því að ég tel nauðsynlegt að ljúka við þetta samkomulag farsællega kemur Evrópusambandinu ekkert við heldur íslensku efnahagslífi. Það er nauðsynlegt að við göngum frá þessu samkomulagi til þess að við fáum lán, m.a. frá frændþjóðum okkar, og til þess að vinnumarkaðurinn nái sér vel að nýju og bankarnir reisist við. Það er dagljóst og hefur margkomið fram að þess vegna þarf að ljúka þessu samkomulagi.

Auðvitað þarf samt að gera það vel og með hagsmuni Íslands að leiðarljósi fyrst og fremst. Sú sem hér stendur hefur lagt áherslu á einmitt það og, virðulegi forseti, mér líkar illa ef verið er að leiða að því líkum að eitthvert annað sjónarmið en að vinna að hagsmunum Íslendinga sé það sem mér býr í brjósti. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) (Gripið fram í.)