137. löggjafarþing — 55. fundur,  20. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[20:19]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er nefnilega í rauninni alveg stórmerkilegt mál. Það er mjög sérstakt í þessu, málin verða ekki stærri. Það er algjörlega ótrúlegt að menn hafi ekki verið búnir að afgreiða þetta í ríkisstjórn áður en gengið var í klára málið. Talandi um verkstjórn þá finnst mér alveg furðulegt að ekki hafi verið nein umræða um þessa hluti.

Það er augljóst, og það kom hér fram í máli hv. þingmanns og hefur svo sem komið fram alls staðar í umræðunni, að í það minnsta hæstv. heilbrigðisráðherra var ekki sammála þessari afgreiðslu og ég veit ekki til þess að menn hafi nokkurn tíma — það er að vísu erfitt að finna sambærileg mál — unnið svona í ríkisstjórn. Því miður eru vinnubrögðin í þessu máli, þetta er bara ríkisstjórnin, svo er þingið og hvernig menn hafa unnið þetta hér, (Forseti hringir.) þau eru einfaldlega fyrir neðan allar hellur.