137. löggjafarþing — 55. fundur,  20. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[20:28]
Horfa

Lilja Mósesdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Við ræðum um hvort um sé að ræða gagntilboð þegar settir eru fyrirvarar við ríkisábyrgðina. Ég tel ekki svo vera vegna þess að við erum að semja sem mjög skuldsett þjóð áður en þessir Icesave-samningar bætast við þær skuldir sem til staðar eru. Þá er ljóst að við munum eiga í miklum erfiðleikum með að borga af þeim og það eru ekki hagsmunir Breta og Hollendinga að við lendum í greiðslufalli og getum ekki greitt neitt. Fyrirvarar sem tryggja að við getum haldið áfram að greiða af skuldum okkar sem eru að hluta til skuldir við breska þegna og fyrirtæki hljóta m.a. að vera hagsmunir Breta í þessu máli. (Gripið fram í.)