137. löggjafarþing — 55. fundur,  20. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[22:01]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég deili ekki stjórnmálaskoðunum með hv. þm. Ólínu Þorvarðardóttur en aldrei mundi ég voga mér í ræðustól á Alþingi að kalla skoðanir þess flokks sem hún tilheyrir meinsemd eins og hv. þingmaður leyfir sér að segja um Sjálfstæðisflokkinn í þessari umræðu. Hefur hv. þingmaður gleymt því að árið 2007 var mynduð hér ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar? Því samstarfi lauk 1. febrúar 2009 vegna þess að Samfylkingin gat ekki staðið í lappirnar þá frekar en endranær. (Gripið fram í: Rétt.) Er hv. þingmaður búinn að gleyma því (Gripið fram í.) hver var viðskiptaráðherra þess tíma? Hver var formaður Fjármálaeftirlitsins, (Gripið fram í.) þegar hún leyfir sér að kalla stjórnmálastefnu Sjálfstæðisflokksins meinsemd?