137. löggjafarþing — 55. fundur,  20. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[23:22]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Sjálfstæðisflokkurinn er mjög snúinn flokkur. Hann snerist á einu augabragði í afstöðunni til EES-samningsins, á einu augabragði. Hann snerist á einu augabragði til breiðrar eignaraðildar að bönkunum, gömlu ríkisbönkunum, á einu augabragði snerist hann. Á einu augabragði er Sjálfstæðisflokkurinn líka að snúast, virðulegi forseti, í Icesave-málinu.

Þetta er snúinn flokkur. (Gripið fram í: Þetta er ekki …) (Gripið fram í: Gott svar.)