137. löggjafarþing — 55. fundur,  20. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[23:27]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er nokkuð ljóst að ekki loga öll ljós í kolli hv. þingmanns ef hann getur ekki munað 2–3 spurningar sem beint er til hans úr ræðustóli. Ég spurði hv. þingmann hvað honum þætti um orð Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi formanns stjórnar Fjármálaeftirlitsins, um að bankakerfið á Íslandi væri heilbrigt í maí í fyrra og hvað honum þyki um orð fyrrverandi formanns Samfylkingarinnar, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttir, sem sagði rétt fyrir hrun: Hér er engin kreppa. Þetta eru einfaldar spurningar og ég vænti þess að það skíni ljós í kolli hv. þingmanns og spurningarnar séu ekki svo háfleygar að honum sé um megn að svara. (Gripið fram í.)