ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég er alveg gáttaður á ræðu hv. þm. Björns Vals Gíslasonar, varaformanns nefndarinnar. Hann er ekki kominn lengra en í 1. gr. breytingartillagnanna, hann er ekki kominn að 2. og 3. gr. (Gripið fram í: Hann skilur þetta ekki.) og hann skilur þetta ekki. Hann gefur öðrum þingmönnum einkunn og í því máli sem þjóðin hefur mestar áhyggjur af er hann úti á sjó að veiða fisk (Gripið fram í.) og hefur ekki komið að vinnunni af fullum krafti eins og aðrir þingmenn. Maður er alveg gáttaður á þessu. Það stendur í breytingartillögunum sem sátt hefur náðst um að ríkisábyrgð sé takmörkuð samkvæmt 3. gr. Hún er takmörkuð, enda stendur í stjórnarskránni að það sé Alþingi sem veiti ríkisábyrgð en ekki ráðherra eða hv. þingmaður.