137. löggjafarþing — 56. fundur,  21. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[11:45]
Horfa

Atli Gíslason (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Það er bara ein leiðrétting. Ég er ekki vanur því að ganga með stolnar fjaðrir. Þessar hugmyndir eru ekki mínar svo því sé haldið til haga heldur bárust þær mér frá Stefáni Má Stefánssyni prófessor sem ég þekki mætavel og við höfum átt samræður um þetta mál þannig að ég kom þeim á framfæri. Þetta eru hans hugmyndir. Við yfirlestur taldi ég þær skynsamlegar.