137. löggjafarþing — 56. fundur,  21. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[12:21]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég deili þeirri skoðun með hv. þm. Atla Gíslasyni að vonandi kemur í ljós hjá rannsóknarnefnd Alþingis hvað var að gerast á þessum tímum fyrir og eftir bankahrunið. Það er og verður mikilvægt fyrir íslenska þjóð. Það verður líka mikilvægt að þar verði ekkert dregið undan og engum hlíft og engu eirt vegna þess að þetta er kafli í sögu þjóðar sem verður að vera gegnsær, opinn og hægt að fara í uppgjör vegna hans. Fyrr ríkir ekki sátt í íslensku samfélagi.

Í ljósi þess að þetta var val þáverandi ríkisstjórnar og meiri hluta Alþingis, þess heldur af því að maður getur alltaf verið vitur eftir á, eins og einhvers staðar stendur, ber að hafa í huga að það má ekki undir nokkrum kringumstæðum nú hvika frá því að lagalega sé réttarstaða okkar skýr og möguleiki á að leita þess réttar ef og þegar við þurfum á að halda.