137. löggjafarþing — 56. fundur,  21. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[13:54]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Við lifum á miklum óvissutímum. Það hafa gengið miklar hremmingar yfir íslenska þjóð og hér sitjum við alþingismenn Íslendinga við að reyna að greiða úr einu stærsta og versta máli sem eftir stendur eftir bankahrunið.

Mikilvægt er að hér ríki samstaða um þær lausnir sem við Íslendingar ætlum okkur að nota til að byggja upp samfélag okkar að nýju. Það er gríðarlega mikilvægt. Það hafa mörg mistök verið gerð á þeirri ferð sem við höfum átt frá 6. október sl. Þau mestu að mínu mati eru þau að hafa ekki í öllum okkar ráðum reynt að koma málum þannig fyrir að um þær gerðir sem hér færu í framkvæmd mundi ríkja samstaða. Það eru mistök fyrri ríkisstjórnar og það eru jafnframt mistök þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr.

Þau mistök hafa ekki síst litið dagsins ljós í því máli sem við ræðum í dag. Allt frá því að fregnir bárust af því að nú væri að koma niðurstaða í samningaviðræðurnar — því var reyndar neitað fyrst tveim dögum áður en samningarnir sjálfir voru svo undirritaðir, hér á hinu háa Alþingi var því neitað að lausn væri í sjónmáli — þá hefur verið þessi tregða um að upplýsa málið. Að reyna að ná einhverri samstöðu var ekki markmið ríkisstjórnarinnar til að byrja með og það er alvarlegur hlutur. Við alþingismenn upplifðum það að sitja hér á þingflokksfundum og fá örstutta reifun frá samningamönnum ríkisstjórnarinnar á því um hvað þessir samningar mundu snúast. Um það máttum við ekki tjá okkur því um það ríkti trúnaður. Á sama tíma var forsætisráðherra í fjölmiðlum að tjá sig um það hvað stæði í þessum samningum. Ekki var verið að reyna að byggja upp neina samstöðu þá meðal þingmanna. Þannig var haldið á þessu máli frá upphafi af hálfu ríkisstjórnarflokkanna að það var nánast ógerlegt og að mínu viti óhugsandi að um það mundi nokkurn tímann skapast samstaða af nokkru tagi hér á Alþingi sem var gríðarlega alvarlegur hlutur að gera og það er gríðarlega mikil ábyrgð sem hvílir á herðum forustumanna ríkisstjórnarinnar hvað þetta varðar.

Hins vegar hafa hlutirnir breyst í meðförum Alþingis og það er vel vegna þess að verkefnin sem blasa við okkur Íslendingum eru það stór og viðamikil að ekki veitir af því að við reynum þó alla vega að standa saman í gegnum brimskaflana og taka þær ákvarðanir sem eru bestar fyrir þetta land. Þar ber helst að nefna þá alþingismenn sem sitja í fjárlaganefnd og hafa setið löngum stundum, kvöld, morgna og fram á nótt við það að berja saman sameiginlega niðurstöðu sem liggur fyrir í dag. En sú var ekki raunin fyrir nokkrum vikum. Fyrir nokkrum vikum stóðum við enn í þingsalnum að reyna að kría út upplýsingar varðandi þessi mál.

Hér kom fram í máli hv. þm. Árna Þórs Sigurðssonar að misskilningur væri í gangi um það að við hefðum aldrei átt að sjá samningana. Það er þá djúpstæður misskilningur vegna þess að ég sit á Alþingi Íslendinga og ég upplifði það þannig að það væri ekki meiningin að ég fengi að sjá þennan samning. Hann var reifaður í fyrsta lagi mjög stuttlega fyrir okkur. Í annan stað komu þau skilaboð frá samstarfsmönnum forustumanna ríkisstjórnarinnar að vissulega fengi Ríkisendurskoðun afrit af samningunum sem mundi svo reifa það fyrir okkur þingmönnum eða þeim þingmönnum sem sætu í þeim nefndum sem málið varðaði. Þetta voru vinnubrögðin og það er gríðarlega alvarlegt að þannig hafi verið haldið á málum. En síðan gerist það einfaldlega í þinginu að hugrakkir alþingismenn sem sitja í fjárlaganefnd sérstaklega taka það einfaldlega upp hjá sjálfum sér að neita því að láta málið fara svona í gegnum þingið. Málið var í pattstöðu í fjárlaganefnd þar sem hugrakkir menn þar neituðu því að það færi svona í gegnum þingið. Og það er vel vegna þess að það versta sem hefði getað gerst fyrir þjóðina hefði verið það að málið hefði farið óbreytt í gegnum þingið í krafti meiri hlutans. Að ríkisstjórnarflokkarnir og forustumenn ríkisstjórnarflokkanna hefðu beitt sínu flokksagavaldi á þá þingmenn sem vildu í rauninni ekki samþykkja málið óbreytt. Þessum þingmönnum ber því að þakka og þeim ber að hrósa í hástert og geri ég það hér með.

Jafnframt hafa ýmsir einstaklingar úti í samfélaginu lagt sig í líma við að lesa málsskjölin, kynna sér þau til hlítar, skrifa lærðar blaðagreinar, koma ábendingum til alþingismanna um það sem betur má fara í þessu máli og er það ómetanlegt framlag fyrir þjóðina að menn finni það upp hjá sjálfum sér að taka þátt í því að bjarga landinu okkar á þennan hátt. Það er gríðarlega mikilvægt að enn sé til þessi hugsun hjá Íslendingum og hana ber jafnframt að þakka.

Nú bera allir stjórnmálaflokkar sem sitja á Alþingi sína ábyrgð á þessu máli. Helst væri hægt að undanskilja Borgarahreyfinguna. En engu að síður berum við öll ábyrgð, allir stjórnmálaflokkar sem hér sitja, ábyrgð á þessu máli og ekki síst nú þegar við ætlum að fara að greiða atkvæði um það hvernig lyktir málsins verða í þinginu.

Það urðu stjórnarskipti fyrr á árinu. Fram að þeim tíma hafði Sjálfstæðisflokkurinn setið í ríkisstjórn og komið þessu máli, Icesave-samningunum í þann farveg með þingsályktun frá Alþingi 5. desember 2008 að það átti að reyna að leita pólitískra lausna. Hins vegar kom þá fram að tryggt væri að tekið yrði tillit til hinna erfiðu aðstæðna sem hér á landi ríktu og að forsendur fyrir lausn málsins væru byggðar á því og tækju mið af sérstakri og fordæmalausri stöðu landsins. Jafnframt kom fram að ekki væri fallið frá þeim lagarökum sem Ísland hefði sett fram í málinu. Með þetta veganesti fór samninganefnd af stað til Breta og Hollendinga. Þannig var það. Síðan urðu ríkisstjórnarskipti, skipti á mönnum í samninganefndinni, sem ég ætla ekki að lasta hér, alls ekki, en hins vegar fékk nefndin þau skilaboð frá ríkisstjórninni, verkstjóranum í þessu máli, hvernig skyldi haldið á málinu og niðurstaðan er hræðilegur samningur þar sem hvergi er tekið tillit til hinna sameiginlegu viðmiða, hvergi er tekið tillit til þeirrar staðreyndar að Íslendingar voru beittir hryðjuverkalögum af Bretum, þar sem hvergi er tekið tillit til þess að málið allt byggir á því að við lögleiddum gallaða tilskipun frá Evrópusambandinu. Við skulum aldrei gleyma því að grunninn að þessu öllu saman er að finna hjá Evrópusambandinu, hinu heilaga Evrópusambandi sem Samfylkingin heldur fram að komi til með að redda öllum málum. Við skulum halda þessu til haga. Þetta er alls ekki gallalaust skipulag þarna úti í Brussel og við skulum halda þessu til haga og muna það í gegnum allt þetta ferli.

Virðulegi forseti. Ég hef haft miklar efasemdir um að okkur Íslendingum beri hreinlega að greiða þessar skuldir. Ég hef haft uppi miklar efasemdir um að það sé rétt af okkur að fara samningaleiðina og hvort ekki sé hreinlega betra fyrir okkur að láta Breta og Hollendinga sækja sinn rétt gegn okkur fyrir dómstólum. Ég hef enn þá þessar efasemdir í hjarta mínu. Ég hef þessar efasemdir og ég áskil mér þann rétt að hafa þessar efasemdir og halda þeim til haga í meðferð málsins hér á Alþingi. Hins vegar skil ég það vel að við erum í afskaplega þröngri stöðu og sérstaklega nú þegar ríkisstjórnin er búin að skrifa undir samningana án þess að hafa tryggt sér fyrir því meiri hluta Alþingis þannig að þeir vissu alla vega að þeir kæmu málinu í gegn. Þetta er bara ábyrgðarhluti að halda svona á málum og vekur manni efasemdir um það hvort þetta góða verkstjórnarvald sem átti að tröllríða landinu eftir stjórnarskiptin sé til staðar. Ég leyfi mér einfaldlega að hafa efasemdir um það.

Þrönga staðan gerir það hins vegar að verkum að lærðir menn í þinginu, ábyrgir alþingismenn settust niður í fjárlaganefnd eftir að ríkisstjórnarflokkarnir voru komnir algerlega í þrot með það að knýja málið í gegnum þingið og reyndu að finna skynsamlega lausn á málinu. Þar fæddust hinir lagalegu fyrirvarar og hinir efnahagslegu fyrirvarar. Efnahagslegu fyrirvararnir eru sterkir og hafa gríðarlega þýðingu þar sem þeir girða fyrir það að við þurfum að greiða það háar greiðslur árlega að þjóðin ráði hreinlega ekki við þær. Þetta er gríðarlega mikilvægt og vegna þeirrar umræðu sem fór fram hér í morgun og þeirrar ræðu sem hv. varaformaður fjárlaganefndar, Björn Valur Gíslason, hélt þar sem hann hélt því fram að frá 17. júlí hefðu ekki komið fram nein gögn í málinu sem skiptu máli, þá verður maður hreinlega hálfkjaftstopp (BVG: Hneyksli.) vegna þess að frá þeim tíma hefur málið gersamlega snúist við. Það mætti halda að sjálfur varaformaður fjárlaganefndar hefði verið einhvers staðar úti á sjó og ekki vitað hvað verið var að tala um á þinginu. Ég vil leyfa mér að fullyrða það að þessi vinnubrögð að koma upp í ræðustól og segja hluti sem þessa á svona viðkvæmum tímum þegar verið er að reyna að halda í samkomulag um þetta mál, þetta erfiða mál, að leyfa sér að koma hér og hrófla við því með þessum ábyrgðarlausa hætti er eitthvað sem ég tel að hans flokkur ætti að taka upp á næsta þingflokksfundi og hreinlega fara fram á afsökunarbeiðni.

Síðan hef ég haft ákveðnar efasemdir eftir að umræðan hófst í þinginu um þessar deilur eða mismunandi túlkanir á því hvað þessir fyrirvarar þýða fóru að koma í ljós. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að þeir aðilar sem sátu í fjárlaganefnd og áttu þátt í að móta þessar tillögur gerðu það af heilum hug og hv. þm. Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, og hv. þm. Árni Þór Sigurðsson fóru yfir það í andsvari áðan að þeir telja að það sé fullkomlega gagnkvæmur skilningur á því meðal þeirra sem unnu að þessu hvernig ætti að túlka þetta. Það virðist hins vegar ekki vera hjá forsvarsmönnum stjórnarflokkanna og ýmsum talsmönnum sem hafa komið fram í dag. Það vekur hjá fólki eins og mér, sem hef fyrir miklar efasemdir um það hvort við séum á réttri vegferð, það vekur og styrkir mínar efasemdir. Þess vegna tel ég kristaltært að meðferð þessa máls sé ekki lokið í þinginu. Fjárlaganefnd hlýtur að taka það inn milli umræðna og fara vel yfir þetta og hnykkja á því hvað þessir fyrirvarar þýða. Það er algjörlega nauðsynlegt svo hægt sé að útkljá þetta mál í sæmilegum friði í þingsölum. Forsenda þess að hægt sé að standa við bakið á þessu máli er sú að menn viti hvað þessir fyrirvarar þýða. Hvaða afleiðingar hafa þeir? Það er einfaldlega þannig. Ég treysti fjárlaganefnd, sem hefur staðið sig gríðarlega vel í þessu máli, til að fara vel yfir þetta og ég krefst þess að hún fái þann tíma sem hún þarf til þess. Það liggur einfaldlega ekkert á því að þingmenn fari í sumarfrí. Ég leyfi mér bara að segja það. Við erum hér að fjalla um gríðarlega mikilvæga hagsmuni og það er einfaldlega ekki til fyrirmyndar að við förum á handahlaupum í gegnum þessa umræðu, að fjárlaganefnd fái ekki tíma til að hnykkja á þessum atriðum til að þingmenn komist í smáfrí. Vissulega eru þeir orðnir þreyttir og það er bara allt í lagi með það. Við buðum okkur fram og okkur ber skylda til að klára þetta mál þrátt fyrir að það taki tíma. Við verðum einfaldlega að bíta á jaxlinn og gera það. Það er ekkert annað í boði.

Virðulegi forseti. Þegar hv. þm. Pétur H. Blöndal flutti ræðu fyrr í dag þá tjáði hann sig um það að hann hefði áhyggjur af því hvernig kynning málsins gagnvart okkar erlendu viðsemjendum færi fram. Ég deili þessum áhyggjum með honum og ég vil hvetja til þess að þingheimur allur hugsi með hvaða hætti við getum talað okkar máli erlendis. Okkur Íslendingum hefur ekki farnast vel að gera það frá hruni og þar ber bæði fyrri ríkisstjórn og núverandi ríkisstjórn mikla ábyrgð. Nú stöndum við hins vegar hér, 63 þjóðkjörnir fulltrúar þjóðarinnar, við erum öll kosin af þjóðinni, (PHB: Með fjárveitingavald.) með fjárveitingavald og okkur ber einfaldlega að sinna því hlutverki okkar að berjast fyrir hagsmunum Íslendinga. Við öll hvert og eitt hérna inni getum gert það með þeim hætti að tala okkar málstað og útskýra það hvað við erum að gera á þingi í dag fyrir kollegum okkar erlendis. Það er það sem við eigum að gera. Það má heyra það, frú forseti, að mér líst ekki vel á það að Alþingi sé að fara í neitt frí.

Virðulegi forseti. Auk þess að fara yfir þetta í fjárlaganefnd milli umræðna hvaða þýðingu fyrirvararnir í raun hafa er algerlega nauðsynlegt að fara vel yfir það hvernig kynningu málsins verður háttað. Hvað muni gerast árið 2024. Ég tel að það þurfi að skerpa á því í orðalaginu, í fyrirvörunum. Ég tel að líta beri til þeirrar tillögu sem Indefence-hópurinn hefur lagt fram um það hvernig eigi að eyða óvissunni um lagalegt gildi fyrirvaranna. Ég tel að það sé fullrar athygli virði af hálfu fjárlaganefndar að fara vel yfir það. Ég tel að það sé vel þess virði að fá fram viðbrögð þeirra lærðu manna Ragnars Halls og Stefáns Más Stefánssonar á því hvernig fyrirvararnir líta út í dag eftir 2. umr. í þinginu. Ég tel að það sé mikilvægt að fá það fram. Þetta eru menn sem hafa kafað ofan í málin. Eins og ég sagði áðan eru efnahagslegu fyrirvararnir gríðarlega sterkir. Ég tel að það megi líta aðeins betur yfir þá lagalegu.

Frú forseti. Í nefndaráliti 1. minni hluta sem er nefndarálit sjálfstæðismanna í fjárlaganefnd er tekið fram að sjálfstæðismenn áskilji sér allan rétt til að leggja fram eða styðja breytingartillögur varðandi þetta mál og ég áskil mér þann rétt að sjálfsögðu líka. Ég hef farið yfir það hvaða efasemdir ég hef. Þær eru miklar og þær eru til staðar og ég krefst þess að á þær sé hlustað og um þær sé fjallað í fjárlaganefnd og ég veit að það verður gert. Úr þessu gengur ekki að fara á einhverjum handahlaupum yfir málið. Við klárum þetta með sæmd. Við getum þetta og við þurfum einfaldlega að einhenda okkur í verkefnið.

Frú forseti. Það er gríðarlega mikilvægt eftir að hafa farið í gegnum allt þetta erfiða mál í þinginu í gegnum alla þessa umræðu, í gegnum öll þessi fundahöld, það er gríðarlega mikilvægt að við drögum einhvern lærdóm af þessu öllu saman. Hvað stendur eftir eftir þetta sumarþing? Hvaða lærdóm ætlum við að taka með okkur eftir þessa reynslu? Ég tel að í fyrsta lagi þurfum við að læra það á þessu að í svona gríðarlega erfiðu ástandi verðum við að byggja á samstöðunni. Það er það sem á að vera undirliggjandi í öllum þeim ákvörðunum sem hér eftir verða teknar í þinginu og þeim málum sem lögð verða fram. Með þeim hætti komumst við á betri, einfaldari og hraðari hátt gegnum þær hremmingar sem fram undan eru. Þetta er ekki búið. Heimilin, íbúðareigendur og fjölskyldurnar í landinu, sitja núna og velta því fyrir sér hvenær Alþingi Íslendinga ætli að fara að fjalla um skuldastöðu heimilanna. Við erum búin að vera föst í prísund Icesave í átta vikur, sex vikur. Þetta er eftir. (Gripið fram í: Níu, tíu mánuði.) Það hefur ekkert mál verið lagt fram á þessu sumarþingi varðandi heimilin. Við skulum átta okkur á því. Það er margt eftir. Fjárlögin eru eftir. Við skulum því læra það á þessu að hugsanlega ræða saman, hugsanlega láta stjórnarliðar svo lítið að ræða við stjórnarandstöðuna og hafa hana með í ráðum þegar stórar ákvarðanir eru teknar í staðinn fyrir það að reyna að valta yfir menn hér og ætlast til þess að þingmál séu afgreidd án þess að menn fái að sjá grundvallarplögg í málum. Við skulum læra það af þessu máli að það gengur ekki. Við skulum líka læra það að ekki sé gáfulegt fyrir íslenska ríkisstjórn eða hvaða ríkisstjórn sem er að skrifa undir samninga án þess að vita hvort meiri hluti sé fyrir þeim á Alþingi. Við skulum líka læra það af þessu.

Jafnframt vil ég vekja athygli á því, frú forseti, að í nefndaráliti sjálfstæðismanna er tekið fram að Alþingi er hvatt til þess að beita sér fyrir rannsókn á þeirri meðferð sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn viðhafði í haust þar sem hann misbeitti valdi sínu í raun í þágu þriggja aðildarríkja á kostnað Íslands sem er stofnaðili að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Ég tel gríðarlega mikilvægt að við gleymum ekki þessu atriði, þetta er gríðarlega mikilvægt. Við verðum, við erum stolt sjálfstæð þjóð þrátt fyrir allt. Við eigum framtíðina fyrir okkur en við getum ekki gengið með veggjum og látið kúga okkur. Það er ekki hægt. Við verðum að berja í borðið, við verðum að krefjast svara, við verðum að krefja Alþjóðagjaldeyrissjóðinn svara varðandi þetta mál og alþjóðasamfélagið allt vegna þess að þeirra er ábyrgðin, þeirra er ábyrgðin á því að við komumst lifandi í gegnum þetta allt saman.