137. löggjafarþing — 56. fundur,  21. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[15:27]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég veit ekki betur en þegar núverandi forseti Alþingis tók við embætti hafi hún einmitt lagt mikla áherslu á að hún mundi gjarnan vilja sjá þennan vinnustað verða aðeins fjölskylduvænni. Ef eitthvað er held ég að hlutirnir hafi bara versnað frá því að hún tók við embætti, hann sé minna fjölskylduvænn en áður. Sem dæmi má nefna að ég held að það hafi örugglega verið ýmsir sem eiga börn þar sem var verið að setja skóla hjá í dag en þetta mál er það mikilvægt að við viljum frekar vera hér og ræða þetta vegna þess að við erum að tala um framtíð barnanna okkar. Við erum að tala um það hvers konar samfélag við viljum búa okkar börnum á Íslandi í framtíðinni. Þess vegna hvet ég hv. þingmann til að vinna að því innan síns þingflokks að unnið verði mjög vandlega að þessu milli 2. og 3. umr. innan fjárlaganefndar. Til að tryggja það að ef niðurstaðan verður sú að setja fyrirvara við samninginn þá verði þeir þannig að þeir haldi gagnvart samningnum. Það sé algerlega skýrt áður en við förum í 3. umr. hvort er rétthærra, samningurinn eða fyrirvararnir sjálfir. Það verður að liggja algerlega fyrir og það gerir það ekki núna. Það finnur maður mjög greinilega á þessari umræðu. Þannig að við þurfum ekki að standa hérna eins og ónefndur maður gerði í nýlegu sjónvarpsviðtali og sagði þar að vísu á enskri tungu að hann hefði kannski átt að gera ákveðna hluti sem hann gerði ekki.