ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Vissulega eru skeytasendingarnar frá norsku sósíalistunum áhyggjuefni og raunar er það mér enn meira áhyggjuefni að ég óttast að þetta sé einmitt það sem íslenska stjórnin vill heyra, hún vilji ekki fá stuðning við hinn raunverulega málstað Íslands frá útlöndum.
En þar sem hv. þingmaður þekkir vel til Samfylkingarinnar og vinnubragða hennar langar mig að spyrja hann um mat hans á því hvort hann telji að Samfylkingin muni fallast á það að leitað verði eftir lagaáliti og hvaða ráð stjórnarandstaðan kunni að hafa, fallist Samfylkingin ekki á þetta. Hv. þingmaður vék ágætlega að því í ræðu sinni að það er mjög óþægilegt að búa við það að stöðugt sé verið að reyna að stýra umræðunni af hálfu eins stjórnmálaflokks, ekki með málefnalegri umræðu heldur með einhverjum slóttugheitum. Ég hef sjálfur upplifað það aftur og aftur að verið er að leka því í fjölmiðla í þessu máli og öðrum málum að búið sé að semja um lok máls til þess eins að skapa pressu á að þau séu drifin í gegn.
Nú er þetta enn að gerast. Það er verið að dreifa því út í fjölmiðla að samið hafi verið um það að klára þetta mál á morgun sem er fjarri lagi. En leikurinn er til þess gerður að þegar svo kemur í ljós að ekki er hægt að klára málið á morgun sé hægt að segja: Ja, stjórnarandstaðan er að tefja. Þennan leik höfum við séð leikinn aftur og aftur. Því spyr ég hv. þingmann, sem hefur reynslu af Samfylkingunni: Hvað er til ráða?