ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Þessi 2. umr. sem fram hefur farið um frumvarp fjármálaráðherra, sem gerir íslenskan almenning ábyrgan fyrir skuldum óreiðumanna, hefur verið yfirgripsmikil, fróðleg og að mestu málefnaleg. Ég vil byrja á að þakka þeim þingmönnum stjórnar og stjórnarandstöðu sem unnu með okkur framsóknarmönnum að því að setja fyrirvara við ríkisábyrgðina fyrir mikið og gott starf þar sem flokkspólitík var lögð á hilluna og allir lögðust á eitt þrátt fyrir gríðarlegan þrýsting forustumanna stjórnarflokkanna til hins gagnstæða. Þá vil ég einnig þakka starfsmönnum þingsins sem lagt hafa á sig gríðarlega vinnu í málinu og reyndar á þessu sumarþingi öllu.
Okkur alþingismönnum hefur oft, einkum á síðustu missirum, verið legið á hálsi fyrir að vinna ekki vinnuna okkar. Sú gagnrýni hefur oftast komið utan úr samfélaginu en hefur magnast úr þessum ræðustól, einkum í kjölfar hrunsins. Þar hefur hver bent á annan, ásakað andstæðinga og jafnvel pólitíska samverkamenn líkt og hæstv. núverandi viðskiptaráðherra, Gylfi Magnússon, gerði í 1. umr. um þetta mál fyrir tæpum tveimur mánuðum. Þar sakaði hann forvera sinn í starfi, núverandi formann þingflokks Samfylkingarinnar, Björgvin G. Sigurðsson, um virkan þátt í mesta glannaskap Íslandssögunnar er hann í langvinnu aðgerðaleysi sínu lét útþenslu Icesave-reikninganna í Bretlandi og markaðssetningu þeirra í Hollandi óátalda.
Þá vitnaði hæstv. félags- og tryggingamálaráðherra, Árni Páll Árnason, í grein fyrrverandi formanns Framsóknarflokksins, Jóns Sigurðssonar, þar sem aðdraganda Icesave-málsins er lýst og hvernig það mál fór allt úr böndunum í ráðherratíð hv. þm. Björgvins G. Sigurðssonar.
Nú þegar þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa hvatt til að vanda sig til verka við afgreiðslu þessa einhvers mesta hagsmunamáls íslensku þjóðarinnar hafa vinnubrögð forustumanna stjórnarflokkanna verið þeim og Alþingi til vansa. Forustumenn stjórnarflokkanna telja að nú þegar búið er að vinna í málum í tæpa tvo mánuði og leggja fram nokkra tugi skjala sé nóg að gert og málið skuli í gegn nær óbreytt með nokkrum fyrirvörum sem óvíst er hvort haldi. Hefði þingið haft þennan tíma til að vinna að málinu sjálfu er hugsanlegt að tekist hefði að ná þverpólitískri sátt um það. Mikill tími fór hins vegar í að brjótast í gegnum leynihjúp ríkisstjórnarinnar sem hún sveipaði samninginn í og öll gögn er honum tengdust. Í fyrstu taldi ríkisstjórnin nægilegt að embættismenn flyttu þingmönnum endursögn á helstu atriðum samningsins og þar við ætti að sitja. Það var ekki fyrr en samningnum við Hollendinga var lekið til fjölmiðla að fallist var á að þingmenn fengju að sjá samningana í heild sinni. Í kjölfarið hófst gríðarleg rimma við stjórnarliða þar sem toga þurfti út úr þeim hvert einasta skjal sem viðkemur málinu. Ítrekað var beðið um lista yfir þau skjöl sem snertu málið svo þingmenn gætu beðið um þau gögn sem þeir töldu að skiptu máli við meðferð þess. Svörin voru einföld: Tilgreinið bara hvaða skjöl þið viljið og við munum leggja þau fram. Það var ekki svo auðvelt þar sem þingmenn vissu ekki hvaða skjöl voru til. Enn höfum við ekki upplýsingar um öll gögn málsins.
Í þetta karp fór stór hluti þess tíma sem málið hefur verið í meðförum Alþingis. Þá var hamagangurinn slíkur við að rífa málið úr utanríkismálanefnd og efnahags- og skattanefnd að annað eins hefur vart sést á síðari tímum. Það er miður að þeir stjórnarþingmenn sem þó hafa unnið að þessu máli af heilindum, menn á borð við Guðbjart Hannesson, formann fjárlaganefndar, skuli líða fyrir þessi vinnubrögð forustumanna stjórnarflokkanna. Af þeim sökum vannst ekki tími til að ljúka þessu máli í fullkominni sátt og er það álit okkar framsóknarmanna að forustumönnum stjórnarflokkanna hafi tekist að þynna þá fyrirvara, sem fengið hafa nafnið Ögmundarfyrirvarar, nógu mikið út svo úr þeim er allt bit. Þannig telja forustumenn stjórnarflokkanna að þessir fyrirvarar muni í engu hnika þeim samningi sem ríkisábyrgðin hvílir á. Helst er á þeim að heyra að Bretar og Hollendingar muni ekki gera athugasemdir við þá fyrirvara sem hér eru til umræðu og jafnvel heyrast þær raddir frá stjórnarliðum að nauðsynlegt sé að þynna fyrirvarana enn meira út. Þannig sagði hv. varaformaður fjárlaganefndar, Björn Valur Gíslason, á bloggsíðu sinni í gær að samninginn ætti að samþykkja óbreyttan og helst að draga til baka eitthvað af fyrirvörunum milli 2. og 3. umr. Þar segir, með leyfi forseta:
„Samningarnir hafa ekkert breyst í meðförum þingsins frá því þeir voru undirritaðir í byrjun júní síðastliðnum. Fjárlaganefnd skerpir hins vegar á endurskoðunarákvæðum samningsins og skýrir þannig betur út fyrir þjóðinni hvað til þurfi til að Íslendingar muni óska eftir viðræðum við Hollendinga og Breta um fyrirkomulag efnda samninganna ef til þess kemur að það muni reynast erfitt að standa við þá. Það er ágætt að gera það. Aðrar tillögur nefndarinnar eru hins vegar þess eðlis að líklegt má þykja að þær breytist aftur til þess sem áður var í meðförum þingnefnda á milli 2. og 3. umræðu eftir að þingið hefur fjallað um málið í dag. Við sjáum hvað setur. Í augnablikinu bendir fátt til annars en Alþingi muni samþykkja óbreytta þá ágætu samninga sem gerðir voru um málið í sumarbyrjun. Það er líka ágætt að gera það og þó fyrr hefði verið.“
Þessi sami þingmaður hélt því reyndar fram í ræðu sinni áðan að framsóknarmenn hefðu ekkert komið að þessu máli. Þessi misskilningur skrifast kannski á þá einstöku óheppni þingmannsins það sem af er kjörtímabilinu að hann hefur þurft að taka sér frí til að sinna hinni vinnunni sinni í hvert sinn sem erfið mál hafa komið upp. Þannig var hv. þingmaður, varaformaður fjárlaganefndar, fjarverandi þann tíma sem vinna fór fram við þá fyrirvara sem hér um ræðir og kann það að skýra þekkingarskort hans á ferli málsins. Ég óttast mjög að orð þingmannsins sem ég vitnaði til áðan, sem og orð þau sem fallið hafa af munni forustumanna stjórnarflokkanna séu aðeins til marks um að Bretar og Hollendingar og hugsanlega stór hluti stjórnarliða telji fyrirvarana marklausa. Með því að samþykkja ríkisábyrgð þó með fyrirvörum sé er Alþingi búið að samþykkja samninginn óbreyttan og í kjölfarið verður það væntanlega breskra dómstóla að kveða upp úr um það hvort fyrirvararnir hafi nokkurt gildi.
Þetta er eitt stærsta mál Íslandssögunnar. Verið er að samþykkja að skuldbinda íslenskan almenning til að greiða allt að 1.000 milljarða kr. skuld óreiðumanna. Við höfum ekki efni á að spara tíma eða peninga við að vinna þetta mál eins vel og mögulegt er. Það er grátlegt að formaður þess flokks sem mest hefur talað um virðingu Alþingis og hversu mikilvægt er að þingið sé eflt sem mótvægi við framkvæmdarvaldið skuli hafa reynt að berja niður þingmenn síns eigin flokks sem ekki voru sammála honum um meðferð málsins.
Um framgöngu Samfylkingarinnar þarf ekki að fjölyrða því hún hefur haft vit á því að halda sig til hlés og varpa ábyrgðinni af Icesave-málinu kirfilega yfir á samstarfsflokk sinn. Það er reyndar eftirtektarvert að maður með jafnlanga reynslu á Alþingi og Steingrímur J. Sigfússon, hæstv. fjármálaráðherra, skuli falla í sömu gryfju og Framsókn gerði of oft á ríkisstjórnarárum sínum með Sjálfstæðisflokknum, að standa ítrekað í stafni og taka á sig brotsjói sem samstarfsflokkurinn hefur magnað upp. (Gripið fram í.) Maður hefði haldið að hann hefði eitthvað lært af reynslu okkar framsóknarmanna.
Mikið hefur verið rætt um ábyrgð og m.a. fór fyrrum andlit Baugsmiðlanna mikinn í ræðustól í gær og særði af innblásinni reiði niður drauga fortíðarinnar. Hann skautaði þó fimlega fram hjá draugum Samfylkingarinnar og fyrtist við ef honum var bent á þá, þingflokksformanninn, ráðherrana og óbreytta þingmenn. Ég get ekki beðist afsökunar á misgjörðum annarra, hvort sem um er að ræða samflokksmenn mína né aðra.
Framsóknarflokkurinn tók háskalega hægri beygju um miðjan síðasta áratug með alvarlegum afleiðingum, ekki bara fyrir flokkinn heldur þjóðina alla. Þar héldu um stjórnvölinn menn sem verða sjálfir að standa reikningsskil gerða sinna. Þeir eru allir hins vegar horfnir af vettvangi stjórnmála og úr forustu Framsóknarflokksins og þeir verða sjálfir að biðjast afsökunar á sínum gjörðum telji þeir ástæðu til. Það eina sem ég get gert er að gera mitt besta til að leiðrétta kúrs Framsóknarskútunnar og ná henni aftur inn á miðju íslenskra stjórnmála, helst aðeins vinstra megin við miðju þar sem hún á heima, laus við öfgar hægri og vinstri. Það höfum við gert með endurnýjun þingflokks og forustu og gagngerðrar endurskoðunar á stefnu flokksins. Það mættu ýmsir aðrir taka sér til fyrirmyndar.
Ég ætla ekki að fara fram á að hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson biðjist afsökunar á verkum samflokksmanna sinna sem stýrðu skútunni inn í hrunið en bendi honum á að þeir hinir sömu eru enn við völd í skjóli þingmannsins. Þingmönnum Vinstri grænna vil ég hins vegar gjarnan benda á að kynna sér sögu Framsóknarflokksins og hvernig honum reiddi af í 12 ára samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn þar sem hann dróst stöðugt lengra inn í kjölsog frjálshyggjunnar og drukknaði þar næstum. Menn tala um að læra af reynslunni en ana svo áfram blindaðir af valdagræðgi og óbilandi trú á eigin ágæti. Þegar ég horfði á VG kokgleypa hvert stefnumál sitt á fætur öðru í þjónkun við stóra bróður sem hótar litla bróður við hvert fótmál finn ég fyrir hálfgerðu „dejà vu“.
Mörgum hefur orðið tíðrætt um helmingaskipti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í gegnum tíðina. Ekki ætla ég að þræta fyrir það að einstaklingar og fyrirtæki hafa hagnast á tengslum sínum við ráðamenn hverju sinni en hefur það litlu skipt hverjir hafa verið við völd. Sú staðreynd að þjóðin hefur treyst þessum tveimur flokkum best fyrir velferð sinni frá lýðveldisstofnun hefur væntanlega haft þau áhrif að stuðningsmenn annarra flokka hafa þó talið á sig hallað. Hins vegar má benda á að Alþýðuflokkurinn hefur sjaldan verið langt undan þegar pólitískar stöðuveitingar og eignasölur hafa verið annars vegar. Á árum áður voru þessi vinnubrögð nánast viðurkenndur hluti stjórnsýslunnar en á síðustu árum hefur almenningur og í kjölfarið við stjórnmálamenn orðið meðvitaðir um þann skaða sem slík stjórnsýsla getur valdið. Einkavæðing ríkisfyrirtækja, sem hófst í alvöru í Viðeyjarstjórn þeirri sem Jóhanna Sigurðardóttir og Össur Skarphéðinsson voru ráðherrar í og hélt áfram með ríkisstjórnum Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar, hefur alla tíð verið umdeild. Hæst ber einkavæðingu Búnaðarbankans sem síðar varð Kaupþing og Landsbankans, einkum vegna þess hversu gríðarleg áhrif á íslenskt samfélag gjaldþrot þessa banka hefur haft. Þó má halda því til haga að þótt kaupendur Landsbankans hafi líkast til verið handvaldir af ráðamönnum áttu þeir aðilar sem keyptu Búnaðarbankann þó a.m.k. hæsta boðið í bankann og borguðu fyrir hann.
Á þessum árum mynduðust tvær viðskiptablokkir í landinu. Þar sem áður hafði verið kolkrabbinn og smokkfiskur í skjóli Sjálfstæðisflokks og Framsóknar voru komnir Jón Ásgeir og Björgólfarnir sem blómstruðu í skjóli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Svo hratt blómstruðu þessar viðskiptablokkir að fljótlega uxu þær stjórnmálaörmum sínum yfir höfuð. Í ljós hefur komið að völd þeirra og fjárráð voru slík að í raun má segja að þeir hafi keypt sér draumaríkisstjórn árið 2007. Á annað hundrað milljónir þurfti í kosningasjóði flokkanna en árangurinn varð ríkisstjórn þessara flokka þar sem viðskiptablokkunum var endanlega sleppt lausum.
Þá litu dagsins ljós ný helmingaskipti en í stað þess að um væri að ræða stjórnmálaflokka með viðskiptaarma voru komin fram viðskiptaveldi með stjórnmála- og fjölmiðlaarma. Afleiðingar þess þekkjum við. Bankar í eigu þessara auðhringa léku lausum hala, endurfjármögnun án athugasemda með sparifé almennings í Bretlandi og Hollandi og ráðherra bankamála klappaði með. Því sitjum við uppi með gríðarlega óútfyllta ávísun á ríkissjóð sem ætlað er að greiða skuldir þeirra óreiðumanna sem voru fjárhagslegir bakhjarlar þessara flokka.
Frú forseti. Í þessu máli eru allt of mörg vafaatriði til að hægt sé að hleypa því í gegn að óbreyttu. Í fyrsta lagi er hreinlega óvissa um hvort okkur beri yfir höfuð að veita þessa ríkisábyrgð. Ef ótvírætt væri að innstæðutryggingarsjóður væri ríkistryggður þyrfti enga sérstaka ríkisábyrgð. Þrátt fyrir yfirlýsingar hrunstjórnarinnar með bankamálaráðherra Samfylkingarinnar í broddi fylkingar um að við bærum ótakmarkaða ábyrgð leikur vafi á lagalegu gildi þeirra. Hrunstjórninni var líka vorkunn eftir að hafa trompað upp Icesave-reikningana leynt og ljóst og riðið um héruð til að dásama útrás bankavíkinganna. Enginn veit hversu mikið við þurfum að borga en sumum stjórnarþingmönnum er hreinlega alveg sama, vilja ekki tala um krónur og hafa 25 milljarða aukagreiðslur í flimtingum eins og um sé að ræða skiptimynt. Í vor talaði forsætisráðherra um 150 milljarða en nú gerir varfærnasta mat ráð fyrir að lágmarki 400 milljörðum og þeir svartsýnustu allt að 1.000 milljörðum. Slík er óvissan.
Hér er verið að reyna að setja efnahagslegan og lagalegan fyrirvara við ríkisábyrgð á innstæðutryggingarsjóð. Enginn veit hvort þessir fyrirvarar munu halda — og þó. Nú þegar hefur komið fram bráðabirgðaálit sérfræðinga í alþjóðarétti við Cambridge-háskóla sem lýsir yfir miklum efasemdum um að fyrirvararnir hafi gildi samkvæmt breskum lögum og þar liggur hundurinn grafinn. Um leið og ríkisábyrgð verður samþykkt öðlast samningarnir gildi óbreyttir burt séð frá öllum fyrirvörum. Með samþykkt ríkisábyrgðarinnar hefur Alþingi samþykkt samningana óbreytta. Sjálfstæðismenn virðast telja annað en ég er hrædd um að þeir muni naga sig í handarbökin þegar kemur í ljós að þeir hafa rangt fyrir sér. Orð forustumanna stjórnarflokkanna, almennra þingmanna og erlendra sérfræðinga, nú síðast Kaarlo Jännäri, fyrrum forstjóra fjármálaeftirlits Finna, hefur sannfært mig um það.
Í samningunum eru margvísleg ákvæði sem ætlað er að tryggja að við munum ekki komast undan því að hlíta honum að fullu og öllu. Í 3. gr. segir m.a., með leyfi forseta:
„Alþingi hefur samþykkt að íslenska ríkið taki á sig ábyrgð samkvæmt þessum samningi og samþykkt hver þau lög önnur eða heimildir sem þarf til að tryggja að skuldbindingar Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og íslenska ríkisins samkvæmt þessum samningi og uppgjörssamningnum séu lögmætar, gildar, bindandi og framfylgjanlegar.“ Hér er ekkert pláss fyrir neina fyrirvara.
Í 12. gr. samningsins stendur beinlínis að Bretar og Hollendingar geti gjaldfellt samninginn ef eitthvert ákvæði hans, með leyfi forseta, „hættir að vera lögmætt, gilt, bindandi og framfylgjanlegt.“ Með öðrum orðum, ætli Alþingi að setja fyrirvara við ríkisábyrgð geta Bretar og Hollendingar gjaldfellt lánin umsvifalaust eða hvenær sem þeim hentar.
6. gr. samningsins fjallar svo um ábyrgð ríkisins. Þar kemur fram að hún skuli vera óafturkræf og skilyrðislaus. Sérstaklega er tekið fram að ríkið skuldbindur sig til að halda lánveitandanum skaðlausum vegna alls kostnaðar sem lánveitandinn kann að verða fyrir ef einhver af þeim skuldbindingum sem íslenska ríkið ábyrgist samkvæmt samningunum verður óframfylgjanleg, ógild eða ólögmæt. Þannig gætu Bretar litið svo á að með því sé íslenska ríkið að veita tryggingu fyrir því að bæta það efnahagslega tjón sem kann að leiða af fyrirvörunum. Það er ljóst að með samþykki ríkisábyrgðar með fyrirvörum eða án er Alþingi að samþykkja samninginn. Ekki er hægt að halda öðru fram. Eða ætla Íslendingar komnir fyrir dómstól í London eftir sjö ár að halda því fram að samningurinn hafi aldrei tekið gildi og þar með að afgreiðsla Alþingis hafi verið marklaus og yfirlýsingar forsætisráðherra og fjármálaráðherra einnig þrátt fyrir að hafa unnið eftir samningnum árum saman? Eða samningurinn hafi öðlast gildi og þar með ákvæði hans sem útlista að samningurinn ógildi hver þau ákvæði breytinga af hálfu Íslendinga sem stangast á við efni samningsins.
Því er haldið fram á Alþingi að hér standi þingmenn allra flokka nema Framsóknarflokks einhuga að baki frumvarpi um ríkisábyrgð. Það kann að vera en skilningur þeirra á frumvarpinu og áhrifum þess er hins vegar margbrotinn. Stærstur hluti stjórnarliðsins telur að fyrirvararnir hafi ekkert að segja, samningurinn stendur óbreyttur og eina gildi fyrirvaranna sé að útskýra fyrir þjóðinni við hvaða aðstæður við munum fara á hnjánum til Breta og Hollendinga og biðja um vægð. Hluti stjórnarliðsins telur að samningurinn standi óbreyttur en fyrirvararnir muni hafa áhrif á túlkun Breta og Hollendinga á honum þrátt fyrir skýr ákvæði um annað. Svo eru það sjálfstæðismenn sem trúa því enn að ríkisábyrgð með fyrirvörum sé gagntilboð til Breta og Hollendinga sem munu í kjölfarið setjast við samningaborðið og laga samninginn að fyrirvörunum. Þrenns konar skilningur er um þetta.
Hv. þm. Pétur H. Blöndal lýsti því yfir í ræðu áðan að fyrirvararnir haldi því Bretar og Hollendingar geti ekki skuldbundið Alþingi til að greiða þeim neina fjármuni. Þessi rök væru svo sem gild ef hv. þingmaður væri ekki sjálfur að sýna fram á að þau halda ekki. Hann lýsti því nefnilega í löngu máli hvernig Bretar og Hollendingar eru að neyða okkur til að borga gríðarlega fjárhæð og var þar með einmitt ekki að fallast á eigin rök sem eru að Bretar og Hollendingar geta ekki þvingað okkur til að greiða þeim gríðarlegar fjárhæðir án dóms og laga. Því verð ég að segja að ég tel að sjálfumgleði forustumanna stjórnarflokkanna í þessu máli sé verðskulduð. Þeim er að takast að ná saman stórum meiri hluta á Alþingi til að samþykkja samningana óbreytta og setja ríkisábyrgð á þá með fyrirvörum sem ekki halda, a.m.k. miðað við þær breytingartillögur sem liggja fyrir núna. Telji þingmenn enn að einhverjar líkur séu á því að fyrirvarar ríkisábyrgðarinnar haldi ber okkur skylda til að fá úr því skorið áður en við greiðum atkvæði um málið. Telji þingmenn enn að þeir fyrirvarar sem hér á að setja með samþykkt ríkisábyrgðar breyti í einhverju samningnum sem um leið verður samþykktur ber okkur skylda til að fá úr því skorið áður en við greiðum atkvæði um málið. Eða einfaldlega: Hvort er rétthærra fyrir breskum dómstólum fyrirvarar við samninginn eða samningurinn sjálfur? (Gripið fram í: Samningurinn.) Séu fyrirvararnir rétthærri er í raun verið að breyta samningnum en sé samningurinn rétthærri hafa fyrirvararnir ekkert gildi. Þetta verðum við að vita áður en við greiðum atkvæði um þetta mál.
Málið er svo stórt að okkur ber að fá skorið úr öllum vafa um skyldur okkur til að greiða og í kjölfarið heimildir til að setja einhliða fyrirvara við samningana. Kostnaðurinn við að taka sér tíma í að vinna þetta mál vandlega er aðeins brot af þeim kostnaði sem þjóðin mun þurfa að bera verði ríkisábyrgðin samþykkt og samningarnir þar með. Ég vil fá úr því skorið hver ábyrgð okkar sé, hvort samningarnir standi og hvort fyrirvarar haldi áður en ég greiði atkvæði um ríkisábyrgðina. Ég vil ekki þurfa að standa frammi fyrir íslensku þjóðinni eftir sjö ár og segja: Kannski hefði ég átt að skoða málið aðeins betur. Ég vil ekki þurfa að segja eins og ágætur maður í viðtali við erlenda sjónvarpsstöð sagði, með leyfi forseta: „Kannski hefði ég átt að gera það“ eða á engilsaxnesku sem viðkomandi viðtal var: „Maybe I should have“.