137. löggjafarþing — 56. fundur,  21. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[18:15]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og komið hefur fram við þessa umræðu verðum við einfaldlega að skerpa enn frekar á þessum fyrirvörum og á ófrávíkjanlegri tengingu þeirra við samninginn. Það verður að vera alveg skýrt. Eins og segir og ég las upp áðan, með leyfi forseta, tilkynningu frá Indefence-hópnum þurfi að tryggja að í lagatextanum sjálfum komi fram að lögin um ríkisábyrgð taki ekki gildi fyrr en Bretar og Hollendingar hafa viðurkennt fyrirvara sem í þeim felast. Með því árétta ég þá skoðun mína að þessir fyrirvarar rúmast ekki innan samninganna heldur kalla þeir á nýjar viðræður. Það er ófrávíkjanleg krafa. Ég ítreka að það er alvarlegt að forustumenn ríkisstjórnarinnar og nokkrir hv. þingmenn ríkisstjórnarflokkanna skuli halda öðru fram. En þetta er verkefni hv. fjárlaganefndar núna á milli 2. og 3. umr. málsins að leysa og koma fram með einhverjar þær lausnir á því að sátt geti skapast um þetta, eins þverpólitísk eins og hún getur orðið vegna þess að þannig verður þetta sterkast.