137. löggjafarþing — 56. fundur,  21. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[18:28]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jónínu Rós Guðmundsdóttur fyrir ræðu hennar. Ég er að sjálfsögðu algerlega ósammála henni. Mig langar í fyrsta lagi að spyrja hana út í orð hæstv. utanríkisráðherra sem féllu í umræðunni í dag en þau hljóða svo, með leyfi forseta:

„Þeir fyrirvarar sem Alþingi setur með meiri hluta á þingi hljóta að halda.“ Svo heldur hæstv. utanríkisráðherra áfram: „Fyrirvararnir munu ekki renna ljúflega niður hjá aðilum málsins. Alþingi er fullvalda. Alþingi er fulltrúi þjóðarinnar allrar. Það ræður yfir Íslendingum.“

Mig langar að spyrja hv. þingmann um hvað henni finnist um þau ummæli að Alþingi ráði yfir Íslendingum. Hvaða heimsveldisdrauma ber maðurinn í brjósti? Alþingi setur þjóðinni lög. Alþingi er löggjafarvald Íslendinga eins og þing í öðrum löndum en Alþingi ræður ekki yfir þjóðinni. Ég vil fá hennar álit á þessum atriðum.

Þar sem Samfylkingin hefur það eitt á stefnuskrá sinni að ganga í Evrópusambandið langar mig að spyrja hv. þingmann einnig að öðru. Það liggja fyrir ákvarðanir frá franska seðlabankanum frá árinu 2000 og svo dómur Evrópudómstólsins frá 2002 að samkvæmt samkeppnislögum Evrópusambandsins megi ekki setja ríkisábyrgð á innstæðutryggingarsjóði. Því spyr ég hv. þingmann: Hvað finnst henni um það að Bretar og Hollendingar séu raunverulega að setja á okkur þær kvaðir að skikka okkur til ríkisábyrgðar á Icesave-samningunum þegar þeir brjóta gegn lögum Evrópusambandsins?