137. löggjafarþing — 56. fundur,  21. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[18:48]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er ágætt að fá á hreint hverjar eru staðreyndir þessa máls en það sem skiptir öllu máli núna er hverjar verða lyktir þessa afdrifaríka máls. Ég vona að við berum gæfu til að standa saman að því öll að finna niðurstöðu sem við getum sem flest sætt okkur við.