137. löggjafarþing — 58. fundur,  27. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[11:01]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það sem ég kalla eftir í andsvari við hv. þingmann, og ég er þokkalega ánægð með svörin sem ég fékk, er að þegar breytingartillögur voru kynntar við 2. umr. Þegar sú umræða fór fram um frumvarpið komu fram sjónarmið, bæði frá ríkisstjórninni og einstökum þingmönnum, m.a. varaformanni fjárlaganefndar, um að þetta væri sami samningurinn, honum hefði ekki verið breytt í neinum grundvallaratriðum. Við sjálfstæðismenn erum því ósammála og teljum að með því að takmarka ríkisábyrgðina með þessum hætti sé samningurinn frá 5. júní í raun og veru ekki sá sami og Bretar og Hollendingar skrifuðu undir með okkur. Þess vegna spyr ég: Rúmast þessir fyrirvarar með sömu skapandi hugsuninni og hæstv. utanríkisráðherra boðaði á fyrri stigum í samningunum? Stendur undirliggjandi samningurinn enn með skapandi hugsun (Forseti hringir.) eða erum við í raun að fella hann með þessum fyrirvörum?