ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Auðvitað geta Bretar og Hollendingar gert ýmislegt, það er bara sú staða sem við erum í, hvernig sem við afgreiðum þetta mál, það liggur fyrir. Það sem menn hafa gert hér, til þess að vera bæði með belti og axlabönd, er að þeir hafa gengið þannig frá málum að lögin taka ekki gildi nema Bretar og Hollendingar samþykki fyrirvarana, þeir verða að samþykkja fyrirvarana til þess að ríkisábyrgðin taki gildi.
Ef Bretar og Hollendingar ætla að gera eitthvað allt annað, sem getur vel verið, það getur vel verið að þeir líti svo á að afgreiðslan á þessu máli sé þannig að allar forsendur séu brostnar og þeir muni leita meints réttar síns með allri þeirri hörku sem þeir mögulega geta, (Forseti hringir.) þurfum við að takast á við það og munum gera það.