ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Mætir menn hafa haldið því fram að íslenska þjóðin eigi að borga skuldir sínar, það vefst ekki fyrir mér eða öðrum þingmönnum Framsóknarflokksins. Okkur finnst hins vegar erfitt að kyngja því að okkur sé gert að greiða skuldir sem ekki eru okkar, hvað þá að fá ekki að njóta þess sjálfsagða réttar að láta reyna á ágreining.
Við höfum haft það að markmiði að eðlilegast og skynsamlegast væri að leggja samninginn til hliðar og semja upp á nýtt. Við komum með breytingartillögur okkar að þeirri tillögu felldri og vonumst til þess að þær verði samþykktar. Þær ganga lengra en fyrirvarar meiri hlutans. (Forseti hringir.) Við munum hins vegar sitja hjá við breytingartillögur meiri hlutans jafnvel þó að við teljum þær á margan hátt ágætar.