ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Nú við upphaf þessarar atkvæðagreiðslu finnst mér rétt að minnast stuttlega á að sá valkostur var til staðar fyrir Sjálfstæðisflokkinn og aðra stjórnarandstöðuflokka að leyfa þessu vandamáli að hvíla hjá ríkisstjórninni og flokkum hennar, segja einfaldlega nei vegna þess hversu slæmir samningarnir voru.
Við töldum að við gerðum íslensku þjóðinni meira gagn með því að eiga samstarf við alla þá sem voru okkur sammála um þá efnislegu galla sem voru í málinu. Við höfum í gegnum 2. umr. og síðan í fjárlaganefnd, fyrir 3. umr., unnið að breytingartillögum sem við munum styðja. Við munum styðja þær breytingartillögur sem eru til gagns þó að málið í heild sinni hljóti að vera á ábyrgð ríkisstjórnarinnar.