137. löggjafarþing — 59. fundur,  28. ág. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

136. mál
[10:39]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Hér er lagt til að ef í ljós kemur að skaði hafi hlotist af aðgerðum breskra og hollenskra stjórnvalda fyrir þrotabú Landsbanka Íslands, eigi íslenska ríkið að njóta þess þegar kemur til útgreiðslu úr þrotabúi Landsbanka Íslands hf. Þetta ákvæði er sett með það í huga að mjög líklegt er að einhverjir kröfuhafar láti reyna á það hvort Bretar hafi beitt hryðjuverkalögunum ólöglega gagnvart Landsbankanum. Mér finnst það ankannalegt í ljósi þeirrar umræðu sem fór fram í 3. umr., þar sem fyrir fjárlaganefnd komu Þorsteinn Einarsson hrl. og Þórhallur Þorvaldsson og bentu á að sambærilega við þetta ákvæði gæti hugsanlega reynt á skuldajöfnuð. Við erum að tala um hagsmuni upp á tugi ef ekki hundruð milljarða. (Forseti hringir.) Ég segi já.