138. löggjafarþing — 1. fundur,  1. okt. 2009.

mannabreytingar í nefndum.

[16:03]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseta hefur borist eftirfarandi tilkynning frá þingflokksformanni Samfylkingarinnar um mannabreytingar í nefndum þingsins, samanber 16. gr. þingskapa:

Magnús Orri Schram hverfur úr samgöngunefnd. Ólína Þorvarðardóttir fer úr samgöngunefnd og tekur sæti í umhverfisnefnd. Steinunn Valdís Óskarsdóttir fer úr umhverfisnefnd og tekur sæti í samgöngunefnd. Björgvin G. Sigurðsson tekur sæti í samgöngunefnd.

Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.