138. löggjafarþing — 1. fundur,  1. okt. 2009.

afbrigði um dagskrármál.

[16:04]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Leita þarf afbrigða frá þingsköpum, þ.e. lokamálsgreinar 3. gr. þingskapa um hvernig hluta skal um sæti þingmanna, þannig að hv. þingmaður Helgi Hjörvar geti fengið sæti sem honum hentar. Það er sæti 32 fyrir hv. þingmann Helga Hjörvar.

Enn fremur hefur orðið samkomulag milli forseta og formanna þingflokka að leggja til að tekin verði frá sæti næst inngangi í salnum fyrir formennina en þeir dragi innbyrðis um þessi sæti. Skoðast þau afbrigði samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.

Samkvæmt þessu hefur Birgitta Jónsdóttir sæti 22, Björgvin G. Sigurðsson sæti 8, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sæti 45, Gunnar Bragi Sveinsson sæti 44 og Illugi Gunnarsson sæti 23.