Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.
Tekið er fyrir eina dagskrármálið, stefnuræða forsætisráðherra sem verður útvarpað og sjónvarpað úr Alþingishúsinu. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur. Þingmaður utan flokka, Þráinn Bertelsson, 9. þm. Reykv. n., talar síðastur í fyrstu umferð og hefur sex mínútur.
Röð flokkanna í öllum umferðum er þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur og Hreyfingin.
Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, í annarri og Ólína Þorvarðardóttir, 7. þm. Norðvest., í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, 2. þm. Suðvest., í fyrstu umferð, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 5. þm. Suðvest., í annarri umferð og Ragnheiður E. Árnadóttir, 2. þm. Suðurk., í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra í fyrstu umferð, í annarri Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, og í þriðju umferð Björn Valur Gíslason, 8. þm. Norðaust.
Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, í annarri Siv Friðleifsdóttir, 6. þm. Suðvest., og í þriðju umferð Sigurður Ingi Jóhannsson, 3. þm. Suðurk.
Fyrir Hreyfinguna tala í fyrstu umferð Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykv. s., í annarri umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurk., en í þriðju umferð Þór Saari, 9. þm. Suðvest.