efnahagshrun og endurreisn, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir formann Framsóknarflokksins að rifja upp sögu einkavæðingarinnar þegar hann heldur því fram að við höfum verið á móti dreifðri eignaraðild. Þvert á móti fluttum við tillögur um að staðið yrði þannig að einkavæðingu bankanna að það yrði dreifð eignaraðild. Og það er einmitt það sem gerðist, sú samþjöppun sem varð með sölu á þessum bönkum er upphafið að hruninu. Það er auðvitað fáránlegt að hugsa til þess að nú þegar við stöndum í þessu hruni skuli það vera upplýst að ekki sé enn þá búið að greiða kaupverðið í þessum bönkum sem seldir voru á útsölu fyrir 11 milljarða, þannig er nú sagan.
Hv. þingmaður sakar okkur í Samfylkingunni og þessa ríkisstjórn um að gera ekki neitt en ég hlustaði með athygli á stefnuræðu hans í gær. Ég hlustaði eftir því hvað hann hefði fram að færa til þess að endurreisa efnahagslífið og koma skuldugum heimilum af stað aftur. Það voru engar tillögur, engar hugmyndir. (Gripið fram í.) Já, það er hægt að setja fram svona hugmyndir, draga þær eins og kanínu upp úr hatti að hægt sé að afskrifa 20% lán hjá heimilunum í landinu. Og það er hægt að draga kanínu upp úr hatti og segja að það sé bara ekkert mál að sækja tvö þúsund milljarða til Norðmanna. Þetta eru bara ekki staðreyndirnar sem við stöndum frammi fyrir, því miður.
Við verðum að horfa með þeim augum á raunveruleikann sem við okkur blasir að við getum reist okkur upp úr þessum erfiðleikum. Og hvað þurfum við fyrst og fremst til þess? Við þurfum að endurreisa trúverðugleikann við alþjóðasamfélagið, (Gripið fram í.) það er eitt það mikilvægasta sem við þurfum að gera. Við þurfum ekki nýja ríkisstjórn, eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson grípur hér fram í, (Forseti hringir.) það er alveg ljóst. Það er það síðasta sem við þurfum.